Erlent

Bush samþykkir dauðadóm yfir hermanni

Bush bandaríkjaforseti hefur samþykkt dauðadóm yfir hermanni sem dæmdur var fyrir morð og nauðgun. Er þetta í fyrsta sinn í rúma hálfa öld að Bandaríkjaforseti samþykkir dauðadóm yfir hermanni.

Ekki er hægt að lífláta dauðadæmda hermenn í Bandaríkjunum án þess að forsetinn samþykki slíkt en hann er æðsti yfirmaður bandaríska hersins. Viðkomandi hermannaður hefur setið á dauðaganginum í Forth Leavenworth í Kansas síðan árið 1988.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×