Lögreglumaðurinn með stöðugan verk í fingrinum 20. október 2008 12:59 Ekki var hægt að sauma fingur lögreglumannsins sem brotnaði við bitið. MYND/FEYKIR
Lögreglumaðurinn, sem í fyrrinótt var bitinn illa í fingurinn, verður frá vinnu í einhverjar vikur. Í samtali við héraðsfréttablaðið Feykir segist hann vera með stöðugan verk í fingrinum en sökum þess hve nálægt naglaböndum bitið hafi verið sé ekki hægt að sauma fingurinn saman. Karlmaður réðst á lögregluþjóninn í lögreglubíl og beit í fingur hans þannig að litlu mátti muna að fingurinn færi í sundur. Hafði lögregla afskipti af manninum eftir að hann hafði orðið uppvís að alvarlegri líkamsárás fyrir utan skemmtistað á Sauðárkróki þar sem fórnarlambið lá meðvitundarlaust eftir. „Eftir því sem mér skylst þá er húðin þarna svo þunn að það er ekki hægt að sauma í hana. Þetta verður því bara að gróa að sjálfu sér," segir lögreglumaðurinn. „Ég fékk stífkrampasprautu og er á sýklalyfjum en læknar segja mér að fingurin verði aldrei samur," bætir hann við. Fingur mannsins er brotinn eftir bitið. Lögreglumaðurinn hefur verið í lögreglunni í 9 ár en segist aldrei hafa lent í öðru eins. Hann telur að ofbeldi gagnvart lögreglunni sé að harðna og árásir á lögreglumenn, heilt yfir landið, verði stöðugt ósvífnari. Umræddu atviki lýsir lögreglumaðurinn í samtali við Feyki en það var árásarmaðurinní fyrrnefndri líkamsárás sem beit lögreglumanninn. „Þegar við höfðum náð fótum hans aftur í bílinn ætlaði hann að stinga sér út úr bílnum og þar sem maðurinn var handjárnaður sýndist mér stefna í að hann steyptist með höfuðið á undan niður á götuna. Ég fór því í að hagræða manninum og koma honum inn í bílinn aftur. Einhvern veginn náði hann þá að bíta í fingurinn á mér og þar sem ég var illa staðsettur, hélt honum nánast uppi, gat ég mér litla björg veitt. Hann sleppti því ekki fyrr en um það bil hálfri mínútu síðar og hafði þá því sem næst bitið stykki framan af fingrinum á mér. Það var bara heppni að ég var í hönskum sem síðan aftur varð líklega til þess að hann náði ekki að bíta fingurinn af."
Mest lesið Kölluð út á efsta forgangi þegar tveir féllu útbyrðis Innlent „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Innlent Bó kvaddur í hinsta sinn Innlent Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Innlent Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Innlent Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi Innlent Urðu fyrir vonbrigðum með húsnæðispakka tvö Innlent „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Innlent Fyrrverandi forstjóri FBI ákærður fyrir líflátshótun í garð Trump Erlent Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra framboða í Reykjavík Innlent Fleiri fréttir Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra framboða í Reykjavík „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Kölluð út á efsta forgangi þegar tveir féllu útbyrðis Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Bó kvaddur í hinsta sinn Boða fjölgun flugferða á sama tíma og bátsferðir voru felldar niður Pílagrímaflug Air Atlanta á fullri ferð þrátt fyrir átök Urðu fyrir vonbrigðum með húsnæðispakka tvö Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Hnífstunga í heimahúsi í Árbæ Kvöddu þjóðargersemi með sögum og söng Fróaði sér úti og var gripinn með teiknað barnaníðsefni Eldgos enn líklegasta sviðsmyndin Meirihluti oddvita í glænýju hlutverki Jón Pétur Zimsen biðst afsökunar á færslu sinni Lögreglan á Austurlandi kom að handtöku fimmtíu Bó borinn til grafar: „Þegar kóngurinn kallar lætur maður sig ekki vanta“ „Botninum hefur verið náð“ Segja borgaryfirvöld hafa brugðist íbúum algjörlega Húsnæðispakki 2 kynntur og ófremdarástand hjá Herjólfi Boða allt að 1.400 íbúðir á lóðum ríkisins og í húsum þess „Nítján tíma ferðalag til að keppa sextíu mínútur í handbolta“ Bein útsending: Kynna húsnæðispakka 2 Grunar sterklega að hinn látni sé ferðamaðurinn sem leitað var að Krefjast aðgerða: Nemendurnir þurfi að fara um einn hættulegasta veg landsins Aðalmeðferð hafin í Múlaborgarmáli Bein útsending: Húsnæðismál í aðdraganda kosninga Sumarbúðir fatlaðra barna í húsi sem sé úr sér gengið Sjá meira