Auðgað úran flutt í örugga geymslu Atli Steinn Guðmundsson skrifar 23. október 2008 08:19 Úran.
Bandaríkjamenn og Rússar hafa farið 15 ferðir með auðgað úran úr kjarnorkuverum víðs vegar um Evrópu í örugga geymslu í Síberíu á síðustu þremur árum. Nægilegt magn af auðguðu úrani til að búa til sex kjarnorkusprengjur var flutt með mikilli leynd frá kjarnorkuveri í Búdapest í Ungverjalandi til geymslustöðvar í Mayak í Síberíu til að koma í veg fyrir að því yrði stolið. Sendingin var flutt með skipi um Miðjarðarhafið og alla leið norður til Murmansk, einu hafnar Rússlands sem flytja má kjarnavopn um. Þaðan fóru 13 geislavirkniheld ker, hvert um átta tonn, með lest til Síberíu þar sem úraninu verður komið fyrir í geymslustöð undir hámarkseftirliti. Þessu sögðu bandarískir embættismenn frá í gær en flutningarnir eru hluti af samvinnuáætlun Bandaríkjamanna og Rússa til að koma í veg fyrir að geislavirkum efnum sé stolið úr kjarnorkuverum víða um Evrópu þar sem öryggisgæsla er í lágmarki. Þessi ferð sérstaklega erfið Kenneth Baker, hjá Kjarnorkuöryggisstofnun Bandaríkjanna, sagði þessa ferð hafa verið sérstaklega erfiða. Hún hefði tekið um þrjár vikur og meðan varningurinn var um borð í skipi hafi þess ávallt verið að gætt að það væri sem mest á alþjóðlegu hafsvæði. Kerin 13 hefðu verið flutt með lestum frá Budapest, eitt ker í hverri lest, til Koper í Slóveníu þaðan sem siglt var. Frá höfninni í Murmansk fór úranið svo með lest á leiðarenda í Síberíu. Baker sagði ekki hafa verið hættandi á að flytja úranið landleiðina gegnum Úkraínu og þess vegna hafi sú ákvörðun verið tekin að flytja það bókstaflega í kringum Evrópu. Um 160 kíló af auðguðu úrani voru flutt í þessari ferð - í búnaði sem vó vel yfir 100 tonn.
Mest lesið Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Innlent „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Erlent Fleiri fréttir „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Marco Rubio á leið til Íslands Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sjá meira