Umboðsmaður UMTBS í haldi 8. júlí 2008 00:01 Stutt í fyrstu plötu UMTBS Nema verksmiðjan brenni til grunna.
Það gengur allt annað en þrautalaust fyrir Ultra Mega Technóbandið Stefán (Umtbs) að koma út fyrstu plötunni sinni. Það hefur allt gengið á afturfótunum og síðasta áfallið reið yfir þegar umboðsmaður hljómsveitarinnar var settur í gæsluvarðhald. „Við vöknuðum nú bara einn morguninn og sáum þetta í blöðunum,“ segir Sigurður Á. Árnason Olsen, söngvari Umtbs og aðallagahöfundur. Eins og komið hefur fram á Vísi verður Þorsteinn Kragh, umboðsmaður sveitarinnar, í gæsluvarðhaldi til 24. júlí fyrir meinta aðild að smygli á 190 kílóum af hassi og fleiru sem fannst í húsbíl um borð í Norrænu. Þorsteinn hafði hrifist af tónlist strákanna og hafði ýmsar metnaðarfullar áætlanir fyrir hönd hljómsveitarinnar. Meðal annars hafði hljómsveitin verið á forsíðu Myspace. „Allt í kringum þessa plötu minnir á sápuóperu sem er lengri en Leiðarljós, allt sem hefur getað klikkað hefur klikkað,“ segir Sigurður og dæsir. Nú er platan loksins komin í framleiðslu erlendis. „Eins lengi og verksmiðjan brennur ekki – sem væri alveg eftir öðru – get ég lofað að platan kemur út núna í júlí. Við erum orðnir mjög spenntir en um leið stóískir.“ Umtbs vakti mikla athygli í fyrra fyrir lagið Story of a Star og stóra platan, Circus, átti upphaflega að koma út í febrúar. „Okkur fannst platan bara ekki tilbúin þá. Við viljum skapa alveg nýtt sánd og erum haldnir fullkomnunaráráttu. Við bættum alls konar rugli við og sjáum ekki eftir því í dag, þetta er frábær plata. Við erum að sameina pönkið og diskóið á súrrealískan og vandaðan hátt. Við erum alveg hressir enn þá, en líka fágaðir.“
Mest lesið „Var að syrgja pabba þegar mamma dó“ Lífið Íbúar furða sig á horfnu listaverki Menning Stjörnur fjármálabransans komu saman Lífið Gjörsamlega búinn á því eftir að hafa prófað nýjasta æðið Lífið Glæsilegar í Gamla Bíói Lífið Fréttatía vikunnar: Jakkaföt, hlaupaföt og grænn loðbúningur Lífið Eiginkonan hélt að Vígþór væri að grínast í fyrstu spurningu Lífið Hátindur Netflix réttur staður fyrir Baltasar Lífið Flóni og Alaska ekki lengur „bara vinir“ Tónlist Borgarleikhúsið sviptir hulunni af Trölla Menning Fleiri fréttir Allt það helsta frá Ungfrú Ísland „Var að syrgja pabba þegar mamma dó“ Fréttatía vikunnar: Jakkaföt, hlaupaföt og grænn loðbúningur Glæsilegar í Gamla Bíói Stjörnur fjármálabransans komu saman Eiginkonan hélt að Vígþór væri að grínast í fyrstu spurningu Hátindur Netflix réttur staður fyrir Baltasar Gjörsamlega búinn á því eftir að hafa prófað nýjasta æðið Gunnar Smári rís upp úr „rotnandi holdi“ í sumar Oddvitaáskorun: „Við höfum þurft að skera allt niður vegna hamfaranna“ Síðasti lærlingur Rakmaninoff látinn Sumir sáttir en flestir keppast við að tæta Michael í sig „Ég er búinn að eyðileggja keppnina“ Drakk óvart áfengi í fyrsta sinn og það undir stýri Mætti hættulegasta dýri Afríku og hélt að það væri „einhver belja“ Ísland: „Lauslátasta nunnan í klaustrinu“ Sigga Ósk er Ungfrú Ísland Hvað veistu um... Tenerife? Bein útsending: Nítján stúlkur vilja verða Ungfrú Ísland Það heitasta í veislutertum Orkugeirinn kom saman á ársfundi Orkuveitunnar Áttu að föndra dýr aftan á bolinn Keppast um titilinn Ungfrú Ísland í kvöld Jenner og Elordi verið að hittast síðustu mánuði Oddvitaáskorunin: Þegar byrjuð að skrifa ævisöguna Einhleypir og eftirsóttir sumarstrákar Rifjaði upp martröðina á Arnarhóli Fagnaði sigri með bumbukossi „Ég er ekki stoltur af því hvernig ég lét“ Laufey með lag í nýja Pradadjöflinum Sjá meira