Fregnir af dauða föðurins stórlega ýktar Atli Steinn Guðmundsson skrifar 9. september 2008 08:39
Faðir og sonur í Bretlandi eru sameinaðir á ný eftir átta ára aðskilnað en sonurinn sá föður sínum bregða fyrir í sjónvarpi fimm árum eftir að hann var úrskurðaður látinn. John Delaney hvarf sporlaust árið 2000 og var þá á sjötugsaldri. Þremur árum síðar kvað dánardómstjóri upp þann úrskurð að lík sem fannst í Manchester væri af Delaney. Ýmsir gamlir áverkar á líkinu pössuðu við þá sem Delaney hafði haft og föt sem líkið var klætt voru talin bera vott um klæðaburð hins horfna.John Delaney hvarf sporlaust árið 2000 og var þá á sjötugsaldri. Þremur árum síðar kvað dánardómstjóri upp þann úrskurð að lík sem fannst í Manchester væri af Delaney. Ýmsir gamlir áverkar á líkinu pössuðu við þá sem Delaney hafði haft og föt sem líkið var klætt voru talin bera vott um klæðaburð hins horfna.Það var svo á þessu ári sem sonur Delaney sá föður sinn ljóslifandi í þætti breska ríkisútvarpsins BBC um eldri mann sem dvaldi á vistheimili og hafði misst minnið. Þekkti sonurinn föður sinn þar þegar í stað. Við eftirgrennslan kom svo í ljós að John Delaney hafði fundist ráðvilltur á gangi í Oldham skilríkja- og minnislaus. Var honum komið fyrir á vistheimilinu og þar gefið nafnið David Harrison, svona til þess að kalla hann eitthvað.Sonurinn hafði þegar í stað samband við stjórnendur þáttarins og sagðist ekki vita betur en hann hefði grafið föður sinn árið 2003 en svo séð hann í fullu fjöri á skjánum. Sá gamli var því vakinn upp á ný, fimm árum eftir ætlað andlát.
Mest lesið Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Innlent Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent Fleiri fréttir Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Marco Rubio á leið til Íslands Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Sjá meira