Úrvinda eftir hvolpauppeldi 30. nóvember 2008 07:00 Baldur hefur staðið í ströngu við uppeldi hvolpanna og þurft að gefa þeim á tveggja tíma fresti allan sólarhringinn. „
Ég geri þetta aldrei aftur, það er alveg á hreinu," segir Baldur Brjánsson, fyrrverandi töframaður, sem hefur staðið í ströngu undanfarið við uppeldi á fjórum hvolpum. Baldur hefur átt tvo bolabíta í nokkur ár og fyrir um hálfum mánuði gaut annar þeirra fjórum hvolpum. „Fólk skilur ekki almennilega að fyrstu dagana og vikurnar þarf maður að gefa þessu á tveggja tíma fresti, ekki bara yfir daginn heldur allan sólarhringinn," segir Baldur sem er orðinn úrvinda eftir þessi ósköp. „Maður þakkar bara fyrir ef maður kemur heill út úr þessu á geði," segir hann og hlær. Baldur hefur reynt að fá hvolpa í þrjú eða fjögur ár og ætlar að selja þá þegar rétti tíminn kemur. Hann segir það rosalega dýrt „sport" að eiga bolabíta. „Tveir fullorðnir hundar eru búnir að kosta mig milljón. Svo er þetta lækniskostnaður og sæðingar. Ég var búinn að fara með hana ótal sinnum í sæðingar en það kom ekkert út úr því. Ég ætlaði að prófa þetta núna og aldrei aftur," segir Baldur, sem sér ekki eftir því að hafa fengið sér bolabítana. „Þetta eru svo miklir karakterar þessir hundar. Eigendur þeirra segja að ef maður eignast „bulldog" þá eignist maður aldrei annað." Ævisagan Töfrum líkast þar sem Gunnar Kr. Sigurjónsson rekur viðburðaríka ævi Baldurs er komin út. Baldur vill ekki meina að hún hafi verið orðin tímabær, enda sé hann enn þá ungur að aldri. „Hann talaði við mig í fyrra og ég hélt að þetta væri bara eitthvert djók. Mér datt ekki í hug að manninum væri alvara." - fb
Mest lesið „Hæ ástin mín, Nýtt í hverjum mánuði á fimmtudaginn, ertu laus?“ Áskorun Glódís Perla og Kristófer gengu í það heilaga Lífið Brigitte Bardot er látin Lífið Bæði sorg og gleði að ala upp fimm börn með sérþarfir Lífið Vinsælustu myndböndin á Vísi á árinu Lífið Frægir fjölguðu sér árið 2025 Lífið Sjálfur jólasveinninn skotspónn samsæriskenninga Lífið Ásgeir Kolbeins furðu lostinn yfir steini í jólapakkanum Lífið Þakkar Trump í ólettutilkynningunni Lífið „Fyrri kona mannsins míns er með Parkinson, ekki ég“ Áskorun Fleiri fréttir Brigitte Bardot er látin Glódís Perla og Kristófer gengu í það heilaga Bæði sorg og gleði að ala upp fimm börn með sérþarfir Sjálfur jólasveinninn skotspónn samsæriskenninga Þakkar Trump í ólettutilkynningunni Íslenskur mágur Rex Heuermann efins um ódæði hans Vinsælustu myndböndin á Vísi á árinu Frægir fjölguðu sér árið 2025 Gítarleikari The Cure er látinn Skilaði týndum heyrnartólum alla leið til Hamborgar Sjáðu nýja stiklu úr stjörnuprýddri hasarmynd Balta Ásgeir Kolbeins furðu lostinn yfir steini í jólapakkanum Viðtöl ársins 2025: Missir, afsögn ráðherra, umsáturseinelti og læknir sem þóttist vera með krabbamein Sat uppi með sex kíló af kæstri skötu Kristmundur Axel tók við af Bubba Seinfeld og Friends-leikari látinn Jólagjafir íslenskra vinnustaða Deildar meiningar um lyktina: „Þetta er byrjendaskata“ Fréttamenn gæða sér á skötu í gegnum árin Laufey á landinu Þar sem vinsælustu lög landsins verða til Þessi smurðu mest á reikning Jommunnar Einhverfir kaþólikkar um allan heim heita Þorlákur Cooper bað móðurina um hönd Hadid „Mér finnst gaman að láta sjokkera mig“ Brúðkaup ársins 2025 Heitt í hamsi hjá gestum á „helvíti á jörðu“ í Breiðholti Chris Rea hefur ekið heim um jólin í síðasta skipti Saga jarðaði alla við borðið Vísa ásökunum Skinner um kosningasvindl á bug Sjá meira
Viðtöl ársins 2025: Missir, afsögn ráðherra, umsáturseinelti og læknir sem þóttist vera með krabbamein