Fréttablaðið sýknað af kröfum Hjalta 20. desember 2008 04:00 Stefndi Fréttablaðinu eftir frétt af málefnum kraftlyftingamanna.
Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði í gær Fréttablaðið og ritstjóra þess af kröfum Hjalta Árnasonar vegna fréttar sem birt var í október 2007. Í frétt Fréttablaðsins var rætt við Jóhönnu Eiríksdóttur sem hafði sagt af sér formennsku í Kraftlyftingasambandi Íslands eftir aukaþing sambandsins. Taldi Hjalti að sér vegið og stefndi Fréttablaðinu með kröfu um tíu milljóna króna miskabætur, refsingu og ómerkingu ummæla. Hjalti vildi að þrenn ummæli yrðu dæmd ómerk. Í fyrsta lagi fyrirsögnin: „Kraftlyftingamenn sem vilja ekki lyfjapróf þröngv-uðu formanni sínum frá völdum“, í öðru lagi ummælin „Ekki hafi verið vilji fyrir því meðal áhrifamanna í sambandinu vegna þess að því myndu fylgja regluleg lyfjapróf“ og í þriðja lagi: „... í raun eru tveir menn sem stjórna eiginlega öllu. Þar á hún við þá Auðun Jónsson og Hjalta Úrsus Árnason, en hvorugur þeirra situr í stjórn sambandsins“. Héraðsdómur sagði hvorug fyrrnefndu ummælin tvö beinast sérstaklega að Hjalta heldur að ótilgreindum hópi kraftlyftingamanna sem voru á áðurnefndum fundi. Hjalti gæti ekki fengið ómerkt ummæli sem beindust að ótilgreindum hópi. Þá sagði héraðsdómur síðustu ummælin, þar sem Hjalti er nefndur á nafn, lýsa skoðun Jóhönnu. Skoðanir sem ekki séu settar fram á ærumeiðandi hátt verði að telja innan marka þess tjáningarfrelsis sem varið sé af stjórnarskránni. Hjalti kvaðst í gær mundu áfrýja dómnum til Hæstaréttar.
Mest lesið Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Innlent Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Innlent Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu Innlent „Þetta vita Einar og Björg“ Innlent Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Innlent Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Innlent „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Innlent Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn mynda meirihluta Innlent Bardagabúr rís við Hvíta húsið Erlent Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Innlent Fleiri fréttir Nýr borgarstjóri mætir í beina útsendingu Landsnet lagði landeigendur í Hæstarétti Býr sig undir það versta en vonar það besta Fótbolti.net legið niðri í á annan sólarhring Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka Hallgrímur kom í þáttinn sem mótvægi við oflof um Davíð Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Bókstafir verði að tölustöfum Draugagangur, búrtíkur og öngull í rassi „Þetta vita Einar og Björg“ Skotið fór í gegnum handlegg og endaði í öxl Hafa þegar rætt við Daða Má um samgöngusáttmálann Taka ásýnd Varmár alvarlega og stöðva borframkvæmdir Mun dæma meirihlutann af verkunum Sjálfstæðismenn og Framsókn í eina sæng í Múlaþingi „Orð hennar og þessar upphrópanir ekki til sóma“ Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Kolbeinn tekur við af Bryndísi sem ráðuneytisstjóri Vilja verja pláss íslenskra sjómanna Meirihluti myndaður í Viðey og Hildur nýr borgarstjóri Hildur Björnsdóttir nýr borgarstjóri Áherslur meirihlutasáttmálans: Svari ákalli um breytingar Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Þögull sem gröfin Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn mynda meirihluta Alþjóðlegur sérfræðingur til liðs við Eyjagöng Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Vilja fresta ESB-atkvæðagreiðslu þar til í október Sjá meira