Drepur ekki vini sína 22. desember 2008 05:30 Æskufélagar Ævars, þeir Gunni og Sissó, kunna honum litlar þakkir fyrir að nefna skíthæla í höfuð þeim. fréttablaðið/anton „
Þetta er algjör óþarfi og í raun rakinn óþverraskapur að gera „mig“ að Haukamanni. Og hann viðurkennir að það var með vilja gert!“ segir Gunnar Viktorsson, sjúkraþjálfari og FH-ingur fram í fingurgóma. „Sagðist meira að segja hafa hlegið upphátt þegar hann skrifaði það!“ Ævar Örn Jósepsson sendi nýverið frá sér hinn krassandi krimma Land tækifæranna. Þar lendir persónan Árni, einn fjórmenninganna sem mynda lögguteymi í glæpasagnaseríu hans, í því að rannsaka morðmál sem tengist gömlu skólaklíkunni hans í Hafnarfirði. Ævar Örn sjálfur gekk í skóla í Hafnarfirði. Og gengst við því að á stundum er Árni málpípa höfundar. Þegar við bætist að í klíkunni úr Landi tækifæranna eru tveir sem heita Gunnar Viktorsson eða Gunni Viktors og Sigþór Jóhannesson eða Sissó, þá vekur það upp grun að þarna sé um lykilróman að ræða. Uppgjör Ævars við sína gömlu klíku úr Hafnarfirðinum, því bæði Gunnar og Sigþór voru bekkjarfélagar hans. Og mega það heita kaldar kveðjur því persónurnar eru vafasamir pappírar svo ekki sé meira sagt. Og Árni rannsóknarlögreglumaður var þar utangátta. „Nei, ég var ekki utangátta í minni gömlu skólaklíku sem myndaðist í Lækjarskóla. Mér leið afskaplega vel þar,“ segir Ævar Örn. Og neitar að um lykilróman sé að ræða. „Ég er bara að skíra karakterana í höfuðið á góðu fólki sem ég þekki. Sem á ekkert sammerkt með þeim að öðru leyti, það er lykilatriði. Og hef gert það í öllum öðrum bókum mínum einnig. En, já, Gunni er enn einn minna allra bestu vina, og þótt sambandið við Sissó sé kannski stopulla þá er hann einhver mesti ljúflingur sem ég þekki.“ Sá fjórði í klíkunni heitir Kristján Kristjánsson, nafn útgefanda Ævars á Skaganum og fimmti er fórnarlambið Daníel Marteinsson. „Það er út í loftið. Ég drep ekki vini mína,“ segir rithöfundurinn. Gunnar, er byrjaður á bókinni og segir það svo sem í lagi sín vegna að nafni hans í bókinni sé vafasamur karakter en ítrekar að honum þyki sérdeilis illkvittnislegt af félaga sínum að gera nafna sinn að Haukamanni. Sigþór, sem er lærður bakari en starfar nú hjá Lyfjaveri sem tölvumaður, segir það óneitanlega afar sérstakt að lesa bók þar sem alnafna sinn sé að finna. „Ekki bara Sigþór Jóhannesson heldur er hann kallaður Sissó! Þetta fer ekkert á milli mála. Ég, bakaradrusla úr Hafnarfirði, orðinn lögfræðingur og skíthæll. Nei, ég er ekki ánægður með karakterinn minn. Og veit ekki hvort Ævar hugsar svona til mín? En ég er í góðum félagsskap þarna í „ríjúníoninu“ því þar eru Elsa, Sigga, Bragi, Gaui og Systa líka.“
Mest lesið Grátbað um að fá að deyja en fagnar nú öllum framförum Lífið Stjórn fyrirtækisins hefur formlega rannsókn Lífið Borgarbörnin orðin sveitaballasjúk: „Ef þú ferð þangað sérðu ekki einn síma á lofti“ Lífið Óskandi að það væru fleiri börn með Downs á Íslandi Lífið Fréttatía vikunnar: Eldgos, heimsókn Ursulu og frægur gítar Lífið Sætar og seiðandi einhleypar sumarskvísur Lífið Af hverju vinkar Teslan alltaf á sama stað? Lífið Tognaður í báðum lærum og blöðrur á öllum tám Lífið Næturskrunið eyðileggi svefninn og ungmennin vansvefta Lífið „Ég gat ekki haldið aftur tárunum“ Lífið Fleiri fréttir Óskandi að það væru fleiri börn með Downs á Íslandi Fréttatía vikunnar: Eldgos, heimsókn Ursulu og frægur gítar Grátbað um að fá að deyja en fagnar nú öllum framförum Stjórn fyrirtækisins hefur formlega rannsókn Bragason leikur Zeldu prinsessu Borgarbörnin orðin sveitaballasjúk: „Ef þú ferð þangað sérðu ekki einn síma á lofti“ Næturskrunið eyðileggi svefninn og ungmennin vansvefta Ótrúleg upplifun að vera í algjöru myrkri á tónleikum Tognaður í báðum lærum og blöðrur á öllum tám Sætar og seiðandi einhleypar sumarskvísur Coldplay kom óvart upp um framhjáhald forstjórans Útilokar fimmta hjónabandið: „Ég held ég sé búinn með það“ Sýnishorn úr nýjustu mynd Hlyns Pálmasonar Pete Davidson að verða pabbi: „Nú vita allir að við sváfum saman“ Af hverju vinkar Teslan alltaf á sama stað? Connie Francis er látin „Maður þarf alltaf að hafa augun opin“ „Ég gat ekki haldið aftur tárunum“ Birta og Króli eiga von á dreng Sumarlegt og ofurhollt kínóasalat að hætti Jönu Emma Watson svipt ökuleyfinu Yngsti gusumeistari landsins Sjarmerandi raðhús í 105 Sögufrægur gítar Stones fannst hálfri öld eftir að honum var stolið „Þetta er miklu stærra en fólk gerir sér grein fyrir“ „Óljósir, fallegir og stundum óþægilegir hlutir“ Óútgefinni tónlist Beyoncé stolið úr bíl danshöfundar „Þú stýrir þínum rokkstjörnulífsstíl“ „Yndislegir vinir gáfu okkur saman í plötubúð“ Sögulegt sveitaball í hundrað ár Sjá meira