Lá lífið á að komast á barinn Atli Steinn Guðmundsson skrifar 22. september 2008 11:03 Ætli Loretta Tollison hafi ekki náð að koma nokkrum svona fyrir kattarnef á meðan hún beið eftir lögreglunni?
Rúmlega fimmtug kona í Belton í Suður-Karólínu í Bandaríkjunum á yfir höfði sér ákæru vegna þorsta síns. Lögregla kom að Lorettu Tollison á bar um hálftíuleytið á fimmtudagskvöldið. Þetta teldist varla í frásögur færandi nema fyrir þá sök að á leið sinni á barinn hafði Loretta ekið Chrysler-bifreið sinni viðstöðulaust á aðra bifreið sem numið hafði staðar vegna vegaframkvæmda á brú á þjóðvegi US 29 norður. Bifreiðin sem ekið var á snerist 180 gráður við áreksturinn og fór við það út af brúnni og hrapaði niður á stæði fyrir utan stórmarkað fyrir neðan. Loretta lét það ekki teppa för sína þótt líknarbelgurinn í stýrinu spryngi út heldur hélt akstrinum áfram og ók á fullri ferð gegnum framkvæmdasvæðið þar sem vegavinnumenn áttu fótum sínum fjör að launa. Hún nam ekki staðar fyrr en hún kom að Passing Time-barnum þar sem hún settist sallaróleg að drykkju. Hún skildi ekkert í fyrirganginum í lögregluþjónunum sem komu inn á barinn skömmu síðar. „Ég veit ekki hvað vegavinnumennirnir voru að gera í vinnunni um þetta leyti dags," sagði Loretta við skýrslutöku. „Það voru engin ljós þarna." Independentmail.com greindi frá.
Mest lesið Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Erlent Fleiri fréttir „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Marco Rubio á leið til Íslands Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sjá meira