Sjö foreldrar létust frá 12 börnum vegna vímuefnaneyslu 10. júní 2008 12:54 Bragi Guðbrandsson, forstjóri Barnaverndarstofu.
Sjö foreldrar sem höfðu haft forsjá tólf barna létust frá þeim af völdum vímuefnaneyslu og geðræns vanda á árinu 2007 og til loka maí í ár. Þetta kemur fram í upplýsingum sem Barnaverndarstofa aflaði í kjölfar mikillar umræðu í fjölmiðlum um aðstæður barna sem fíklar létust frá. Athugun Barnaverndarstofu náði til alls landsins. Hún leiðir í ljós að barnaverndarnefndir komu að málum 6 mæðra og eins föðurs sem höfðu haft forsjá barns og létust af völdum vímuefnaneyslu og geðræns vanda. Þessir foreldrar áttu samtals 12 börn sem þeir höfðu forsjá yfir sem fyrr segir. Á heimasíðu Barnaverndarstofu segir einnig að tvær mæður og tveir feður sem átt hafi sjö börn, en ekki haft forsjá yfir þeim, hafi látist á sama tímabili. Félagslegir þættir einkenna ekki hópinn „Athugunin leiddi jafnframt í ljós að ekki er hægt að greina neina félagslega þætti sem einkenna þennan hóp umfram neysluvanda. Þannig létust forsjáraðilar á ólíkum aldri, eða frá 20 til rúmlega 50 ára aldurs. Þá voru aðstæður þessara aðila mismunandi fyrir andlát; í sumum tilvikum hafði neysla ekki verið fyrir hendi í langan tíma þar til skömmu fyrir andlát, í öðrum tilvikum hafði neysla verið viðvarandi og dæmi er jafnframt um að barnaverndarnefnd hafi ekki öðlast vitnesku um neysluvanda foreldris fyrr en eftir andlát þess," segir á heimasíðu Barnaverndarstofu.Þá leiðir úttekt Barnaverndarstofu í ljós að fjölmargir foreldrar sem barnaverndarnefndirn hafa nú afskipti af geta talist í lífshættu vegna neyslu á áfengi og öðrum vímuefnum. Segir á heimasíðunni að barnaverndarnefndum sé mikill vandi á höndum vegna þessa.„Á hitt ber að líta að foreldrar með fíknisjúkdóm eru almennt ekki lakari foreldrar en aðrir, takist þeim að halda sig frá vímugjöfum. Því er til mikils vinnandi að styðja þessa foreldra til að leita sér meðferðar við sjúkdómi sínum og viðhalda heilbrigðu lífi svo þeir geti axlað uppeldisábyrgð sína eins vel og frekast er kostur. Barnaverndarstarfsmenn þekkja betur en flestir aðrir hin fjölmörgu dæmi þess að foreldrar hafi náð fullkomnum tökum á sjúkdómi sínum, m.a. með hjálp meðferðarstofnana, og í kjölfarið reynst börnum sínum eins góðir foreldrar og best verður á kosið," segir enn fremur á heimasíðunni.Þar segir einnig að Barnaverndarstofa muni á næstu mánuðum leita leiða til að styrkja starf barnaverndarnefnda í þessum vandasömu störfum.
Mest lesið Kviðdómandi neitar að fylgja reglum um sönnunarbyrði Erlent Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Erlent Skrifað undir viljayfirlýsingu vegna jarðganga til Eyja Innlent Eyvindur P. Eiríksson látinn Innlent Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Erlent Tveimur bjargað úr göngum níu dögum eftir skyndiflóðin Erlent Einn enn með stöðu sakbornings vegna E. coli sýkingar á Mánagarði Innlent Óttast að yfir áttatíu hafi farist Erlent Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Innlent Fleiri fréttir Langreyðarkvótinn mun tæplega nást Fylgdarakstur um Hvalfjarðargöng að næturlagi í næstu viku Eyvindur P. Eiríksson látinn Lægðardrag teygir sig yfir landið Myndir: Opnunarhóf nýs Kvennaathvarfs Tekinn á 190 þar sem má aka á 90 kílómetra hraða Einn enn með stöðu sakbornings vegna E. coli sýkingar á Mánagarði Skrifað undir viljayfirlýsingu vegna jarðganga til Eyja Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Búið að opna fyrir umferð að nýju eftir bilunina Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Sjá meira