Lífið

Ekki endalaus hreindýr og piparkökur

Átak að detta í jólagírinn síðsumars Stefán Hilmarsson beitti aðferðafræði Björgvins Halldórssonar á jólaplötu sinni, Ein handa þér.
Átak að detta í jólagírinn síðsumars Stefán Hilmarsson beitti aðferðafræði Björgvins Halldórssonar á jólaplötu sinni, Ein handa þér.

Fyrsta jólaplata Stefáns Hilmarssonar er að koma út. Með henni má segja að Stefán sé kominn heilan hring því ferill hans hófst sem kunnugt er fyrir alvöru á „Jólahjólinu“ með Sniglabandinu 1987. Platan heitir Ein handa þér og með Stefáni syngja dúetta þau Ellen Kristjánsdóttir, Helgi Björnsson og Björgvin Halldórsson.

„Ég fer ekkert í grafgötur með það að ég beiti svipaðri aðferðafræði og Björgvin hefur notað á sínum jólaplötum. Að finna lög sem ekki eru jólalög upprunalega en hafa samt þetta ákveðna „jóla-klang“ og gera þau að jólalögum. Ég hef gengið með þessa plötu í maganum í tvö ár og sankað að mér lögum sem uppfylla þessi skilyrði,“ segir Stefán.

Öll lögin sem búið er að „jóla upp“ eru erlend, en íslensku textana gerði Stefán til helminga við aðra – „Þetta er hæfilega jólalegt, ekki alveg yfirkeyrt. Ég er ekki endalaust að syngja um hreindýr eða piparkökur,“ segir hann.

Plötuna tók Stefán upp síðsumars og segir að það hafi verið svolítið átak að detta í jólagírinn. „Nei, ég var nú ekki með stúdíóið fullt af jólaskrauti, en ég sé það núna að það hefði ekki verið óvitlaus hugmynd að vera með jólaglögg.“

Stefán segir það ekki hafa heillað sig að sækja í þann sarp jólalaga sem fyrir er.

„Það er svakalega lítil endurnýjun í þessu flokki tónlistar, kannski 50-60 lög sem ganga aftur og aftur. Mig langaði til að koma með ný innlegg og svo vonar maður að smátt og smátt festist eitthvað af þessu í sessi. Ég er gríðarlega ánægður með plötuna og hef staðið mig að því að hlusta á hana nokkrum sinnum eftir að hún var tilbúin. Það er algjör nýbreytni fyrir mig því vanalega hlusta ég aldrei á plöturnar mínar eftir að ég hef klárað að búa þær til.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.