Bæjarstjóri Álftaness harmar vinnubrögð oddvita Sjálfstæðisflokks 27. ágúst 2008 22:01 Sigurður Magnússon, bæjarstjóri Álftaness.
Bæjarstjóri Álftaness, Sigurður Magnússon, var fyrr á þessu ári borinn þeim sökum að laun hans væru ekki í samræmi við lög og samninga. Krafist var úrskurðar samgönguráðuneytisins um málið og var niðurstaða þess að öllu leyti bæjarstjóranum í hag. Sigurður sendi yfirlýsingu til fjölmiðla í kjölfarið og er hún svo hljóðandi: „Sjálfstæðisfélag Álftaness og oddviti þess í bæjarstjórn, Guðmundur G. Gunnarsson, hafa opinberlega gagnrýnt ráðningarsamning meirihluta Á-lista við mig á þeim forsendum að samningurinn og framkvæmd hans stangaðist á við sveitarstjórnarlög. Ásakanir þessar komu fram í bæjarstjórn og urðu tilefni frétta í blöðum. Í umræðu um málið og í blaðaskrifum var ég borinn þungum sökum, m.a. að skammta mér laun án þess að heimild væri fyrir því í ráðningarsamningi. Guðmundur G. Gunnarsson, oddviti Sjálfstæðismanna á Álftanesi, gekk svo langt að krefjast úrskurðar samgönguráðuneytisins um hvort „framkvæmd Sveitarfélagsins Álftaness á ráðningarsamningi bæjarstjóra væri með eðlilegum hætti, í samræmi við samninginn og í samræmi við eðlilega meðferð varðandi greiðslu launa auk þess hvort framkvæmdin væri í samræmi við lög og reglur um meðferð slíkra samninga." Ráðuneytið hefur nú úrskurðað í málinu og ber að þakka hve úrskurðurinn er skýr og ótvíræður. Niðurstaða ráðuneytisins er sú að samningurinn standist öll lög og samþykktir. Þá gerir ráðuneytið engar athugasemdir við framkvæmd hans. Í úrskurði ráðuneytisins er sjónarmiðum Guðmundar og lögmanns hans, Sveins Andra Sveinssonar, alfarið hafnað, en fallist á sjónarmið mín eins og þau voru sett fram af lögmönnunum Ragnari Aðalsteinssyni og Arnari Þór Jónssyni. Í niðurlagi álitsins segir. „Ekki verður séð af gögnum málsins að greiðslurnar hafi verið óhóflegar. Ráðuneytið telur að það hafi verið innan valdmarka bæjarstjórnar að ákvarða kjör bæjarstjóra með þeim hætti sem gert var í ráðningarsamningnum og framkvæmd hans sé ekki andstæð gildandi réttarreglum. Með vísan til gagna málsins og þess sem að framan er telur ráðuneytið ekki ástæðu til að gera athugasemd við ráðningarsamning bæjarstjóra sveitarfélagsins Álftaness." Eins og fyrr greinir var ég borinn alvarlegum sökum fyrr á þessu ári þar sem látið var að því liggja að laun til mín væru ekki í samræmi við lög og samninga. Fagna ég því þessari niðurstöðu samgönguráðuneytisins, enda er ég með henni hreinsaður af þessum áburði. Ég harma það þegar andstæðingar í stjórnmálum grípa til vinnubragða af því tagi sem gert var í þessu máli og ganga fram í að sverta og hafa æru af andstæðingi sínum þegar málefnaleg rök þrýtur. Ég vona að slík vinnubrögð verði ekki endurtekin. Sigurður Magnússon, bæjarstjóri."
Mest lesið Eftirför endaði í alvarlegu bílslysi á Reykjanesbraut Innlent „Ferðin á þessum bíl var alveg svakaleg“ Innlent „Ökufanturinn“ piltur undir tvítugu Innlent Árni Tómas Ragnarsson er látinn Innlent Missti af tíma hjá lækni vegna umferðarteppu Innlent „Afgerandi vísbendingar“ um veikingu AMOC kalli á stórauknar aðgerðir Innlent Lásu upp rangar lokatölur í Reykjavík Innlent Ósáttur í bílalest á Suðurlandsvegi Innlent Breyttu spurningunni í þjóðaratkvæðagreiðslunni Innlent Gátu enn og aftur ekki mannað flug í tæka tíð Innlent Fleiri fréttir Guðmundur Árni hættir í pólitík: „Ég er enginn moðsuðumaður“ Birta umhverfismat vegna Sundabrautar fyrir lok þessa mánaðar Látinn eyða myndskeiði: „Rúllar sér í grasinu og nær að slökkva í sér“ Bein útsending: Opinn nefndarfundur um samgöngur til Eyja Samfylkingin í Reykjavík þurfi að byggja aftur upp traust Missti af tíma hjá lækni vegna umferðarteppu „Ferðin á þessum bíl var alveg svakaleg“ Meirihlutamyndanir að hefjast víða um land Hildur fundar með öllum og ekkert gefið upp „Ökufanturinn“ piltur undir tvítugu Rýnt í mögulega meirihluta í Reykjavík Malbika seinni akreinina að nóttu til á Suðurlandsvegi Kveikti í sér eftir að hafa verið beittur rafvarnarvopni Breyttu spurningunni í þjóðaratkvæðagreiðslunni Ósáttur í bílalest á Suðurlandsvegi Breytingar á meirihluta í Skagafirði í fyrsta sinn í tuttugu ár Nóg að gera hjá áhöfnum björgunarskipa Lásu upp rangar lokatölur í Reykjavík „Afgerandi vísbendingar“ um veikingu AMOC kalli á stórauknar aðgerðir Árni Tómas Ragnarsson er látinn Gátu enn og aftur ekki mannað flug í tæka tíð Eftirför endaði í alvarlegu bílslysi á Reykjanesbraut Rúmlega þúsund strikuðu yfir Heiðu „Aldrei verið sammála um stjórnmál“ Sjómenn hjá Eimskip boða verkföll Óvæntur ríkisstjórnarfundur í dag Áttu góðan og langan fund í dag Ætla að skipta Miðflokki út fyrir Framsókn Gaf börnum bjór í strætó og hvarf Meirihlutar féllu víða en héldu velli annars staðar Sjá meira