Sextán milljóna króna leikritunarsjóður við Þjóðleikhúsið 10. júní 2008 11:52 MYND/Stöð 2
Hjónin Bjarni Ármansson og Helga Sverrisdóttir hafa í samvinnu við Þjóðleikhúsið stofnað sjóð sem hefur það að markmiði að hlúa að leikritun á Íslandi og efla höfundastarf við Þjóðleikhúsið. Stofnframlag sjóðsins er 16 milljónir króna, en sjóðurinn mun starfa frá árinu 2008 til ársins 2010 eftir því sem segir í tilkynningu leikhússins. Sjóðurinn nefnist Prologus og honum er ætlað að veita árlega allt að fimm höfundum fjárframlag til að vinna úr áhugaverðum hugmyndum og koma þeim í handritsform, ýmist sem drög eða fullbúin leikrit. Sjóðnum er einnig ætlað að stuðla að framþróun og eflingu leikritunar með höfundasmiðjum, samkeppni, útgáfu og tilraunaverkefnum þar sem teflt er saman fólki úr ólíkum listgreinum. „Ritun nýrra leikrita er einn af hornsteinum leikhúslífs á Íslandi, og Þjóðleikhúsið leggur ríka áherslu á það í starfi sínu að hlúa að og efla leikritun í landinu. Vonir standa til þess að stofnun sjóðsins verði til þess að skrifuð verði fleiri góð leikrit á Íslandi sem ná að spegla samtímann eða takast á við mannlífið í víðara samhengi og eru til þess fallin að efla menningu og samfélag," segir í tilkynningunni. Sérstakt fagráð sjóðsins mun fjalla um innsendar umsóknir og mælir með verkefnum við sjóðstjórn, en ráðið getur einnig að eigin frumkvæði mælt með verkefnum. Sjóðstjórn er skipuð þeim Tinnu Gunnlaugsdóttur þjóðleikhússtjóra, Bjarna Ármannssyni og Vigdísi Finnbogadóttur. Í fagráði sitja Sveinn Einarsson leikhúsfræðingur og Melkorka Tekla Ólafsdóttir, leiklistarráðunautur Þjóðleikhússins, ásamt þjóðleikhússtjóra.
Mest lesið Kviðdómandi neitar að fylgja reglum um sönnunarbyrði Erlent Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Erlent Skrifað undir viljayfirlýsingu vegna jarðganga til Eyja Innlent Eyvindur P. Eiríksson látinn Innlent Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Erlent Tveimur bjargað úr göngum níu dögum eftir skyndiflóðin Erlent Einn enn með stöðu sakbornings vegna E. coli sýkingar á Mánagarði Innlent Óttast að yfir áttatíu hafi farist Erlent Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Innlent Fleiri fréttir Langreyðarkvótinn mun tæplega nást Fylgdarakstur um Hvalfjarðargöng að næturlagi í næstu viku Eyvindur P. Eiríksson látinn Lægðardrag teygir sig yfir landið Myndir: Opnunarhóf nýs Kvennaathvarfs Tekinn á 190 þar sem má aka á 90 kílómetra hraða Einn enn með stöðu sakbornings vegna E. coli sýkingar á Mánagarði Skrifað undir viljayfirlýsingu vegna jarðganga til Eyja Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Búið að opna fyrir umferð að nýju eftir bilunina Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Sjá meira