Erlent

Gekk berserksgang með hníf í Ósló

Atli Steinn Guðmundsson skrifar
Myndin tengist ekki þessari frétt.
Myndin tengist ekki þessari frétt.

Þrír eru slasaðir eftir að maður gekk berserksgang í miðbæ Óslóar í gærkvöldi vopnaður veiðihníf með 30 sentimetra löngu blaði.

Maðurinn stakk meðal annars konu í hálsinn. Enginn hinna slösuðu er í lífshættu. Árásarmaðurinn er sómalskur innflytjandi sem margoft hefur komið við sögu lögreglu vegna ofbeldis og fíkniefnaneyslu. Hann er auk þess talinn eiga við geðræn vanheilindi að stríða.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×