Á annað hundrað látnir í Mumbai Atli Steinn Guðmundsson skrifar 27. nóvember 2008 08:09 Hið fornfræga hótel Taj Mahal Palace í ljósum logum í gærkvöldi. MYND/Reuters
Meira en 100 eru látnir og 315 særðir í Mumbai á Indlandi eftir árásir hryðjuverkamanna. Umsátursástand er á tveimur stórum hótelum í borginni. Lögregla hefur fellt eða handtekið nokkra hryðjuverkamenn sem sagðir eru tilheyra samtökunum Deccan Mujahideen. Gíslar eru í haldi á að minnsta kosti tveimur hótelum í Mumbai og ýmislegt bendir til að ráðast hafi átt á fleiri staði, til dæmis fundust átta kílógrömm af sprengiefninu RDX á veitingastað í miðbænum en það er geysiöflugt. Lögregla segir tilræðismennina hafa verið vel skipulagða þegar þeir lögðu til atlögu á mörgum stöðum samtímis um klukkan hálfsex í gærkvöldi að íslenskum tíma. Meðal annars féllu tugir manna á járnbrautarstöð í Mumbai þar sem árásarmennirnir beittu handsprengjum og hríðskotabyssum gegn mannfjölda sem átti erfitt með að koma sér undan sökum þrengsla. Þá varð hótelið Taj Mahal illa úti í árásinni ásamt fleiri hótelum og Cama-sjúkrahúsið varð einnig fyrir árás. Svo virðist sem árásarmennirnir hafi miðað út staði þar sem búast mátti við að erlendir ferðamenn hittust fyrir. Mikil ringulreið ríkir í Mumbai og eldar loga enn víða. Ester Ágústa Berg, sem býr í Mumbai, yfirgaf eitt hótelanna sem ráðist var á örfáum mínútum áður en það gerðist. Fjölskylda hennar er ekki í hættu en mikil óvissa ríkir í borginni um framtíðaröryggi íbúanna, sagði Ester Ágústa í viðtali við Vísi í morgun.
Mest lesið Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Innlent Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Erlent „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent Fleiri fréttir „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Marco Rubio á leið til Íslands Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sjá meira