Lífið

Útgáfutónleikar Jeff who? í kvöld

Jeff who?
Jeff who?

Glaðværu fimmmenningarnir í Jeff Who?, sem sendu 14. nóvember frá sér sína aðra breiðskífu, halda útgáfutónleika í kvöld.

Vísir hafði samband við Elís Pétursson bassaleikara og spurði hann út í tónleikana sem haldnir verða á Nasa.

„Það gengur vel við erum að sándtékka núna á Nasa," segir Elís.

„Við ákváðum að splæsa í strengjakvartett og fengum fjórar stelpur sem eru algjörir snillingar. Þetta er miklu stærra í sniðum en síðast."

„Það kostar fimmhundruð kall inn. Við viljum ekkert vera að rukka neitt óþarflega mikið. Við erum ekkert að græða á þessu þannig séð. Reynum bara að láta dæmið ganga upp," segir Elís.

Með Jeff Who? koma fram strengjasveitin, Esther Thalia, Haukur Gröndal og rokksveitin Dynamo Fog.

Myspacesíða Jeff who?






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.