Erlent

Vopnaður maður handtekinn við heimili Monu Sahlin

Mona Sahlin, leiðtogi sænskra jafnaðarmanna.
Mona Sahlin, leiðtogi sænskra jafnaðarmanna.

Geðsjúkur maður vopnaður hnífi og hamri var handtekinn í gær fyrir utan heimili Monu Sahlin, formanns sænska Sósíaldemókrataflokksins, í bænum Nacka fyrir utan Stokkhólm.

Maðurinn sem er 42 ára hafði hug á að ræða við Sahlin en var stöðvaður og handtekinn af starfsmönnum sænsku leyniþjónustunnar sem voru í staddir í nágrenni hússins.

Í september verða liðin fimm ár frá því að Anna Lindh, utanríkisráðherra Svíþjóðar, var myrt í verslunarmiðstöð í Stokkhólmi af andlega veikum manni. Þá var Olaf Palme, forsætisráðherra Svíþjóðar, myrtur árið 1986 á leið heim úr kvikmyndahúsi og telst málið enn óupplýst.

Mona Sahlin var gestur á landsfundi Samfylkingarinnar vorið 2007.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×