Erlent

Sjö létu lífið í flugslysi í Minnesota

Að minnsta kosti sjö manns létu lífið í flugslysi í Owatonna, í Minnesota í dag, samkvæmt Flugmálastjórn þar í landi. Flugvélin fór frá Atlantic City, í New Jersey, í morgun og brotlenti skammt frá Degner flugvellinum í Owatonna. Flugvélin var af gerðinni Hawker 800. Um borð voru glerframleiðendur á vegum Viracon fyrirtækisins, samkvæmt því sem fram kemur á vef CNN.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×