Erlent

Líkir Obama við Britney Spears og Paris Hilton

John McCain er farin að beita æ harðari og neikvæðari auglýsingum gegn Barak Obama í kosningabaráttu þeirra um forsetaembætti Bandaríkjanna.

Sumir telja að auglýsingaherferð McCain sé að verða svívirðileg. Í nýjustu auglýsingunni er Obama líkt við þær Britney Spears og Paris Hilton. Sagt er að Obama sé álíka ofurfrægur og þær en spurt hvort hann hafi einhverja leiðtogahæfileika.

Stuðningsmenn Obama eru að vonum óánægðir með þessa stefnu hjá McCain en hyggjast svara henni fullum hálsi.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×