Nýtt mál, sömu sakborningar 19. desember 2008 12:16 Helgi Magnús Gunnarsson.
Það eina sem er sammerkt með Baugsmálinu og ákærum á hendur Jóni Ásgeiri og skildum aðilum, sem birtar voru í gær, er að um sömu sakborningana er að ræða. Þetta segir Helgi Magnús Gunnarsson saksóknari efnahagsbrotadeildar og hafnar því að í raun sé verið að gefa út þriðju ákæruna í Baugsmálinu, - um allt aðrar sakagiftir sé nú að ræða. Ríkislögreglustjóri gaf í gær út ákæru á hendur Jóni Ásgeiri Jóhannessyni, Kristínu systur hans, Tryggva Jónssyni, Baugi og Gaumi fyrir meint skattalagabrot á árunum 1998 til 2002. Á meðal þess sem Jón Ásgeir er ákærður fyrir er að hafa komið sér undan því að greiða tæpar 30 milljónir króna í tekjuskatt, útsvar og fjármagnstekjuskatt. Í fréttum okkar í gær sagði Gestur Jónsson, lögmaður Jóns Ásgeirs, með ákærunum vera á ferðinni gamla Baugsmálið sem hófst í ágúst 2002 þegar að það var gerð húsleit hjá Baugi. Og þetta því í rauninni þriðja ákæran sem að gefin er út í málinu. Þetta segir Helgi Magnús Gunnarsson saksóknari hjá efnhagsbrotadeild ríkislögreglustjóra alrangt. Þarna sé um allt aðrar ákærur að ræða fyrir allt önnur brot. Ekki hafi verið ákært í þeim áður og að þarna sé um að ræða meint skattalagabrot sem falli undir önnur refsiákvæði. Aðeins er um sömu sakborninga að ræða. Málið hefur verið til meðferðar hjá efnahagsbrotadeildinni frá árinu 2004. Helgi segir æskilegt að mál taki sem skemmstan tíma í meðferð. Hins vegar hafi margir komið að málinu og að það hafi haft sitt að segja. Sakargiftirnar hafa meðal annars verið til meðferðar hjá yfirskattanefnd.
Mest lesið Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Innlent Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Innlent Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Innlent Tugir tilkynninga í viku: „Þetta var ekki í fyrsta skipti sem þau voru handtekin“ Innlent Gunnar Þórðarson er látinn Innlent „Hún drap börnin“ Erlent Heilum gámi af kampavíni stolið af Ölgerðinni Innlent Okkar McCartney, okkar Bach kveður Innlent Horfðu á bílinn velta niður fjallið Innlent Mosfellsdalur minnti á vígvöll Innlent Fleiri fréttir Borgarísjaka rekur í átt að Skagafirði Stærsta umferðarhelgi ársins hafin Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Meirihluti ætlar að segja já í ágúst Skilningsleysi foreldra mætti litblindum syninum Staðan orðin „þokkalega góð“ Tugir tilkynninga í viku: „Þetta var ekki í fyrsta skipti sem þau voru handtekin“ Okkar McCartney, okkar Bach kveður Vasaþjófar gómaðir á Suðurlandi og minkafár í rénun Fleiri en einn hafi verið að verki Dýralæknafélag Íslands fordæmir skemmdarverk í Dalsbúi Gunnar Þórðarson er látinn Dregur úr ánægju með frammistöðu ríkisstjórnarflokkanna Sex handteknir grunaðir um vasaþjófnað Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Heilum gámi af kampavíni stolið af Ölgerðinni Mosfellsdalur minnti á vígvöll Greinir á um leiðir til að draga úr nikótínneyslu ungmenna Gæsluvarðhald samþykkt yfir Ming Ting „Það er búið að slökkva og húsið er ónýtt“ Gripinn á nánast tvöföldum hámarkshraða Skothljóð og minkafár í Mosfellsdal í beinni Eldur logaði í Stykkishólmi Horfðu á bílinn velta niður fjallið Hvað er í boði um verslunarmannahelgina? „Þeir skulu ekki halda það að þeir geti drepið mig“ Slapp vel þegar bíll hennar valt yfir 200 metra niður Bolafjall Hafdís Huld í bæjarstjórastólinn Allir á hlaupum að reyna fanga minka Sjá meira