Uppselt á styrktartónleikana tíunda árið í röð 26. desember 2008 17:20 Einar Bárðarson er á meðal skipuleggjenda tónleikanna.
Uppselt er á árlega tónleika til styrktar Styrktarfélagi krabbameinssjúkra barna í Háskólabíói sem haldnir verða á morgun, laugardag. Það er athafnamaðurinn Einar Bárðarson sem skipuleggur tónleikana ásamt vinum sínum og vandamönnum úr tónlistarbransanum. Tónleikarnir voru fyrst haldnir árið 1998 og alltaf hefur Einari og félögum tekist að fylla Háskólabíó. „Tónleikarnir voru fyrst haldnir 29. desember árið 1998 og það var engin annar en Jóhannes Jónsson stórkaupmaður sem kynnti tónleikanna það árið en meðal þeirra sem komu fram þá voru Sálin hans Jóns míns og Skítamórall," segir í tilkynningu frá Einari. Hann bætir því við að sterkar hefðir hafi myndast í kringum þessa tónleika sem eru haldnir milli jóla og nýárs ár hvert. „Þeir hafa alltaf verið haldnir í Háskólabíó og EB Kerfi hafa alltaf séð um tækjabúnað." Bylgjan og Stöð 2 hafa einnig ávallt stutt verkefnið og segir Einar afar ánægjulegt hvað þessi fyrirtæki hafa stutt myndarlega verkefnið ár eftir ár. „Þá má líka minnast á það að Sálin hans Jóns míns hefur komið fram á 9 af 10 tónleikum en Stefán Hilmarsson söngvari hefur komið fram öll 10 árin," segir Einar. Það þarf ekki að taka það fram að allir gefa vinnu sína og öll tæki koma og fara án endurgjalds. „Hver einasta króna af seldum miðum hefur ALLTAF verið afhent ÖLL í einni ávísun í hléi á tónleikunum í votta viðurvist. Framlög til tónleikanna hafa einni borist í nafni tónleikanna og er skemmst að minnast 600.000 króna framlags velunnnara tónleikanna í fyrra sem barst í gegnum síma." Þeir sem ljá málefninu lið þetta árið eru: Lay Low, Sálin hans Jóns míns, Sprengjuhöllin, Helgi Björnsson, Bubbi Morthens, Páll Óskar, Skítamórall, Ragga Gröndal, Ingo Veðurguð, Stuðmenn, Friðrik Ómar og Regína og Klaufarnir. Þeir sem ekki eiga heimagengt en vilja styðja við SKB er bent á reikning 301-26-545 - Kennitala SKB er 630591 1129 - allar nánari upplýsingar má nálgast á www.skb.is
Mest lesið Opnar sig um andlát kærastans eftir skotárás í New York Lífið Gurrý um svuntuaðgerðina: „Jesús hvað þetta er búið að vera erfitt“ Lífið Umdeildum K-Pop stjörnum skipt út í Hörpu Lífið Clavicular fluttur á spítala vegna ætlaðrar ofskömmtunar Lífið „Þetta lið á Akureyri vildi ekki gefa mér gullið“ Lífið „Ég vil ekki líkjast öllum öðrum“ Tíska og hönnun „Við teljum að þetta verði sögulegir tónleikar“ Tónlist Óvænt ökuferð að ógleymanlegu augnabliki Lífið „Hún reyndi aldrei að koma í stað mömmu“ Lífið Ástir og átök milli Laufeyjar og Hudsons Williams Tónlist Fleiri fréttir Uppeldið hjá ömmu og afa áhrifamest „Þetta lið á Akureyri vildi ekki gefa mér gullið“ Gurrý um svuntuaðgerðina: „Jesús hvað þetta er búið að vera erfitt“ Clavicular fluttur á spítala vegna ætlaðrar ofskömmtunar Oddvitar landsins takast á við Oddvitaáskorunina Óvænt ökuferð að ógleymanlegu augnabliki Umdeildum K-Pop stjörnum skipt út í Hörpu Opnar sig um andlát kærastans eftir skotárás í New York „Svo kom í ljós að þetta var alls ekki amma mín“ „Hún reyndi aldrei að koma í stað mömmu“ „Ég var mjög skrítinn krakki“ Bryndís Líf orðin móðir Yfirgaf yfirstéttina fyrir loftárásir, listaverkarán og sprengjugerð Oddvitaáskorunin: „Big Papa“ uppáhalds gælunafnið Fyrsti transmaðurinn sem fer með aðalhlutverk í íslenskri kvikmynd Þriðja dóttir Sverris Bergmanns og Kristínar Evu komin í heiminn Óborganlegt faðmlag Jóhanns og Sigurðar „Litlu hlutirnir gefa lífinu merkingu“ Mesta áskorunin að greinast með hryggskekkju Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Britney farin í meðferð Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Söngvari Massive Attack handtekinn á mótmælum Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Eilíf glötun bíður ekki endilega bóka í ruslagámum „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Krakkatía vikunnar: Skoffín, geitur og jarðarber Sjá meira