Erlent

McCain: Obama getur ekki varið okkur gegn Osama

MYND/AP

John McCain, forsetaframbjóðandi repúblikana í Bandaríkjunum, réðst í dag að andstæðingi sínum Barack Obama og sagði hann ekki hæfan til þess að tryggja öryggi þjóðarinnar. McCain var á ferðinni í Tampa í Flórída í dag en það er eitt af þeim ríkjum þar sem barátta þeirra er hvað hörðust.

,,Spurningin er sú hvort maðurinn ráði við það að verja Bandaríkjamenn gegn Osama bin Laden, al-Qaida og aðrar stórar ógnir í heiminum," sagði McCain og bætti við að Obama hefði ekki sýnt fram á að honum væri treystandi fyrir verkinu.

McCain hefur hert árásir sínar á Obama eftir því sem liðið hefur nær kosningum og sakað hann meðal annars um daginn um sósíalíska skattastefnu. Þessu svaraði Obama. ,,Í vikulok mun hann saka mig um að vera laumukommi því ég deildi leikföngum með öðrum börnum á leikskóla," sagði Obama.

Von er á Obama til Flórída þar sem hann mun ávarpa íbúa ríkisins ásamt Joe Biden, varaforsetaefni sínu. Síðar í kvöld mun svo Bill Clinton koma fram á framboðsfundi með Obama. Nú eru aðeins sex dagar til forsetakosninga og benda flestar kannanir til að Obama muni fara með sigur af hólmi, en hann hefur sjö prósentustiga forskot á McCain samkvæmt nýrri könnun Gallups.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×