Lífið

FM-hnakkar fá ádeilubók

Helgi Jean afhendir Heiðari Austmann bók sína Kjammi - bara krútt sem þarf knús.
Helgi Jean afhendir Heiðari Austmann bók sína Kjammi - bara krútt sem þarf knús. MYND/Vilhelm

Rithöfundurinn Helgi Jean Claessen afhenti fyrir skömmu Heiðari Austmann, útvarpsmanni FM957, bók sína Kjammi - bara krútt sem þarf knús. Í henni gerir Helgi grín að hinu hressa FM-fólki og þunglyndislegum bókum Arnaldar Indriðasonar.

Vel fór á með þeim Helga og Heiðari þrátt fyrir innihald bókarinnar og kunni Heiðar honum bestu þakkir fyrir gjöfina. Svala, útvarpsstjóra FM957, finnst uppátæki Helga pínulítið broslegt. „Ég hef ekki lesið bókina en miðað við háðið í því að tala um þessa þunglyndislegu 101-lopapeysurottu sem sér lífið allt öðruvísi en sá síkáti þá finnst mér þetta bara fyndið," segir Svali.

Helgi Jean vildi láta tvær andstæður mætast í bók sinni með því að blanda saman heimi FM957 og þunglyndinu í bókum Arnaldar. „Þarna eru ýkjurnar í báðar áttir. Hjá Arnaldi má aldrei neitt gott gerast en hjá FM má aldrei neitt vont gerast. Hjá FM myndi maður aldrei vita af því ef það væri eitthvað ástand í þjóðfélaginu," segir hann.

Helgi og vinur hans Hjálmar Jóhannsson gáfu fyrir síðustu jól út aðra ádeilubók, Konur eru aldrei hamingjusamar því þær eru með svo litlan heila. Þar gerðu þeir grín að bók Þorgríms Þráinssonar, Hvernig gerirðu konuna þína hamingjusama? Sú ádeilubók seldist í um þrjú þúsund eintökum og verður fróðlegt að sjá hvort nýja bókin nái að feta í fótspor hennar. -fb








Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.