Erlent

Háttsettur Bandaríkjamaður situr fund með Írönum

Háttsettur bandarískur embættismaður mun verða viðstaddur fund fulltrúa Evrópusambandsins og Íran í Sviss í dag þar sem ræða á svar Írana við tilboði Sameinuðu þjóðanna um að Íranir hætti við kjarnorkuáætlanir sínar.

Um er að ræða William Burns aðstoðarutanríkisráðherra Bandaríkjanna. Hann mun samt ekki eiga sjálfur viðræður við fulltrúa Írana, heldur sitja fundinn og hlusta á hvað Íranir hafi fram að færa.

Bandaríkjastjórn hefur hingað til sagt að engar viðræður yrðu við Írani fyrr en þeir hætti áætlunum sínum um að auðga úran til vopnagerðar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×