Erlent

Aðeins munar 1% á Obama og McCain

Ný skoðanakönnun Gallup í Bandaríkjunum sýnir að nú munar aðeins einu prósentustigi á fylgi þeirra Barak Obama og John McCain.

Obama mælist með 45% á móti 44% hjá McCain. Fyrir aðeins viku síðan mældist Obama með 9% meira fylgi en McCain en þá var Obama nýkominn úr för sinni um Miðausturlönd og Evrópu.

Fréttaskýrendur segja að Obama hafi greinilega ekki tekist að halda þessari fylgissveiflu til sín. Stuðningsmen Obama segja hinsvegar að neikvæð auglýsingaherferð McCain í garð Obama valdi því að fylgi Obama minnki.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×