Fjögurra ára dómur fyrir kynferðisbrot gegn systurdætrum 18. janúar 2008 14:41
Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt karlmann í fjögurra ára fangelsi fyrir gróf kynferðisbrot gegn tveimur systurdætrum sínum sem stóðu yfir í mörg ár. Þá var hann einnig sakfelldur fyrir að hafa ljósmyndir af annarri stúlkunni sem sýndu hana á kynferðislegan hátt í tölvu sinni. Manninum var gefið að sök að hafa a tímabilinu 5. desember 1993 til 1. september 1994 í nokkur skipti brotið gegn annarri stúlkunni, sem þá var fimm ára, annars vegar á heimili hans og hins vegar á heimili stúlkunnar. Þá var hann ákærður fyrir að hafa í nokkur hundruð skipti á árunum 1991-2001, brotið gegn hinni stúlkunni, þegar hún var þriggja til ellefu ára. Þau brot áttu sér stað á þáverandi heimilum stúlkunnar og á heimili ákærða. Maðurinn braut meðal annars gegn stúlkunni þegar hún var búsett ásamt fjölskyldu sinni á heimili hans og voru brotin þá nokkrum sinnum í viku. Maðurinn játaði á sig brotin gegn stúlkunum og sömuleiðis kannaðist hann við að eiga barnaklámmyndirnar sem um ræddi. Þær sýndu aðra frænku hans á kynferðislegan og klámfenginn hátt og var stúlkan 8 ára á þremur myndanna en 15 ára á tveimur myndanna. Sýndi einbeittan brotavilja Í niðurstöðu dómsins segir að um mjög alvarleg og gróf brot að ræða, sem eru margítrekuð og beinast að mjög ungum börnum sem höfðu ekki þroska til að greina alvarleika atferlis ákærða. „Brotin eru framin á heimili ákærða eða foreldra telpnanna, en hann er bróðir mæðra þeirra og því í sérstöku trúnaðarsambandi við þær og telpurnar og hefur hann gróflega brugðist því trausti sem honum var sýnt," segir í dómnum. Þá þyki maðurinn hafa sýnt einbeittan brotavilja með því að taka að misnota síðarnefndu stúlkuna þrátt fyrir að móðir hinnar hafi staðið hann að verki við að misnota dóttur sína og hótað honum öllu illu ef hann héldi áfram. Þá þykir það og hafa til þyngingar á refsingu ákærða að hann tælir aðra stúlkuna með því að að gefa henni spil, sælgæti og síðast peninga og svo með því að leyfa henni afnot af tölvu og sjónvarpi.Hins vegar verði að líta til þess að maðurinn hafi verið sjálfur ungur að árum er hann framdi brotin og hann hefur verið samvinnufús við rannsókn málsins. „Það réttlætir ekki verknað hans, að hann sljóvgar dómgreind sína með vímuefnaneyslu og vanlíðan vegna móðurmissis getur ekki skipt hér máli. Atferli ákærða er svívirðilegt og hefur hann engar málsbætur," segir í dómnum.Auk fangelsisrefsingarinnar var maðurinn dæmdur til að greiða fyrrnefndu stúlkunni hálfa milljón króna í bætur og hinn eina og hálfa milljón króna.
Mest lesið Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Innlent „Það gerist ekkert ef ljósin eru slökkt“ Innlent Tvö erindi borist Þingvallanefnd vegna tónleika Kaleo Innlent Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Erlent Eftirför lögreglu endaði á Sorpu Innlent Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Innlent Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Innlent „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Innlent Ný atvinnustefna vanmeti stærstu tæknibreytingu samtímans Innlent Hafi selt alls konar fíkniefni í gegnum „Kannabis Inc“ Innlent Fleiri fréttir Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Tvö erindi borist Þingvallanefnd vegna tónleika Kaleo „Það gerist ekkert ef ljósin eru slökkt“ Ný atvinnustefna vanmeti stærstu tæknibreytingu samtímans Eftirför lögreglu endaði á Sorpu Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Skorað á Guðmund að snúa aftur heim Slagsmál, falsað ökuskírteini og ölvunarakstur Keyrðu utan í bílinn í eftirförinni Endurskoða gjaldsvæði borgarinnar Verulegt magn fíkniefna og hönnunarbolli í vorgjöf Flogið til Vestmannaeyja til mánaðamóta „Þyngra fyrir fæti að fá vinnu“ Hælisleitendamálin settu þrýsting á Reykjanesbæ Vilja verða áheyrnarfulltrúar og hækka laun sín gríðarlega Unnar kjötvörur af matseðli í skólum: „Stranglega bannað að hafa pylsupartý“ Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Ekki hægt að taka framboð gilt þó flokkur misskilji reglur Góðkunninginn í vikulangt gæsluvarðhald vegna smygls Kvikuhlaup enn líklegasta sviðsmyndin Áfrýja ekki dómi vegna dauða dóttur þeirra Slökkti í málskotsbeiðni Matvís vegna Flame Sundlaugar opnar lengur um helgar í sumar Hyggst banna mánaðarlega hækkun leigu Ari hlær að gagnrýni á myndbandið Kosningapallborð fréttastofu: Baráttan um Reykjanesbæ Fimm hundruð bleikjur sluppu úr landeldisstöð „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Betur fór en á horfðist við Mývatn: Lenti á þvervegi og tókst á loft Ekkert að frétta af rannsókn þjófnaðarins í Freysnesi Sjá meira