Jákvæður tónn um að ganga hraðar í verkefnið 18. janúar 2008 15:43 MYND/GVA „
Það má segja að það hafi verið jákvæður tónn um að ganga hraðar í verkefnið og það var vilji í mönnum til þess að setjast yfir þetta af meiri alvöru," segir Sigurður Bessason, formaður Eflingar - stéttarfélags eftir fund Starfsgreinasambandsins og Flóabandalagsins með Samtökum atvinnulífsins hjá ríkissáttasemjara í dag. Þetta var þriðji samningafundur félaganna um nýjan kjarasamning og hefur fjórði fundurinn verið boðaður á mánudaginn kemur klukkan eitt. Sigurður segir ljóst að ágreiningur sé um samningslengd, en Samtök atvinnulífsins hafa talað fyrir fjögurra ára samningi en verkalýðsfélögin fyrir árssamningi. „Menn eru enn að skoða möguleikana í stöðunni og það er verkefnið að vinna sig út úr þessu," segir Sigurður. Viðræðunefnd Starfsgreinasambandsins ákvað í gær að tilnefna fulltrúa í aðgerðanefnd sem á að gera tillögur um aðgerðir ef nauðsyn krefur. Þar á er átt við hugsanlegar verkfallsaðgerðir. Sigurður segir Flóabandalagið öðruvísi sett en menn íhugi ekki verkfall í augnablikinu. „Ef viðræðurnar fara hins vegar að dragast á langinn þá er væntanlega komin upp önnur staða. Menn geta ekki dundað sér í samningsgerð fram eftir vetri," segir Sigurður. Miklu máli skipti að samningsgerðin dragist ekki of lengi og niðurstaðan sé ásættanleg fyrir félaga í verkaðlýðshreyfingunni.
Mest lesið Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Innlent „Það gerist ekkert ef ljósin eru slökkt“ Innlent Tvö erindi borist Þingvallanefnd vegna tónleika Kaleo Innlent Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Erlent Eftirför lögreglu endaði á Sorpu Innlent Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Innlent Ný atvinnustefna vanmeti stærstu tæknibreytingu samtímans Innlent Skorað á Guðmund að snúa aftur heim Innlent „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Innlent Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Innlent Fleiri fréttir Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Tvö erindi borist Þingvallanefnd vegna tónleika Kaleo „Það gerist ekkert ef ljósin eru slökkt“ Ný atvinnustefna vanmeti stærstu tæknibreytingu samtímans Eftirför lögreglu endaði á Sorpu Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Skorað á Guðmund að snúa aftur heim Slagsmál, falsað ökuskírteini og ölvunarakstur Keyrðu utan í bílinn í eftirförinni Endurskoða gjaldsvæði borgarinnar Verulegt magn fíkniefna og hönnunarbolli í vorgjöf Flogið til Vestmannaeyja til mánaðamóta „Þyngra fyrir fæti að fá vinnu“ Hælisleitendamálin settu þrýsting á Reykjanesbæ Vilja verða áheyrnarfulltrúar og hækka laun sín gríðarlega Unnar kjötvörur af matseðli í skólum: „Stranglega bannað að hafa pylsupartý“ Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Ekki hægt að taka framboð gilt þó flokkur misskilji reglur Góðkunninginn í vikulangt gæsluvarðhald vegna smygls Kvikuhlaup enn líklegasta sviðsmyndin Áfrýja ekki dómi vegna dauða dóttur þeirra Slökkti í málskotsbeiðni Matvís vegna Flame Sundlaugar opnar lengur um helgar í sumar Hyggst banna mánaðarlega hækkun leigu Ari hlær að gagnrýni á myndbandið Kosningapallborð fréttastofu: Baráttan um Reykjanesbæ Fimm hundruð bleikjur sluppu úr landeldisstöð „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Betur fór en á horfðist við Mývatn: Lenti á þvervegi og tókst á loft Ekkert að frétta af rannsókn þjófnaðarins í Freysnesi Sjá meira