Voðaverk framin í Kenýa 31. júlí 2008 20:45 Mwai Kibaki og Raila Odinga mynduðu þjóðstjórn fyrr á árinu.
Bandarísk mannréttindasamtök hafa hvatt til þess að vopnasölubann verði sett á Kenya vegna manndrápa og voðaverka hersins í ættbálkadeilum í vesturhluta landsins. Breska varnarmálaráðuneytið íhugar að stöðva þjálfun kenýskra hermanna sem sakaðir eru um aðild að málinu. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu samtakanna Human Rights Watch. Þar segir að síðan í mars hafi kenýski herinn drepið tugi karla og pyntað hundruð til viðbóta í aðgerðum gegn hópi fólks vestast í landinu sem mannskæðar deilur hafa staðið um jarðnæði. Þessi voðaverk eru unnin í hlíðum fjallsins Elgon, skammt frá landamærum Kenya og Uganda. Þar hafa heimamenn slegist um land í rúm tvö ár og hafa manndráp verið algeng á báða bóga. Um hundrað þúsund manns hafa neyðst til að flýja heimili sín það sem af er árinu. Þarna fór allt í bál og brand eftir að stjórnvöld fóru að flytja landlaust fólk úr nágrenninu inn á svæðið og úthluta því jarðarskikum sem heimamenn höfðu ráðið og töldu land forfeðra sinna. Herskáir bændur stofnuðu með sér vígasveitir og hófu ofsóknir á hendur aðkomufólkinu. Fyrr en varði lágu rúmlega 600 manns í valnum og fjölmargir voru pyntaðir - af sumum voru skorin eyrun, munnarnir á öðrum saumaðir saman. Þá var herinn var sendur inn á svæðið og hóf víðtækar handtökur ungra karla sem voru pyntaðir til að segja til félaga í vígasveitunum. Margir sáust aldrei framar en þeir sem sluppu sögðu hroðalegar sögur af meðferðinni hjá hernum. Rauði krossinn í Kenya hefur einn haft óskertan aðgang að fórnarlömbum þessara átaka og hefur séð fólki þar fyrir mat og vatni og læknisaðstoð. Á þriggja vikna tímabili eftir að herinn fór inn á svæðið fengu um 1400 manns læknishjálp hjá Rauða krossinum. Rétt er að taka fram að þessi átök eru í engum tengslum við uppþotin sem kom til eftir kosningarnar í Kenya um síðustu áramót og eru bundin við svæðið í kringum Elgon fjall. Ættbálkadeilur eru raunar algengar í Kenya - og fleiri Afríkulöndum - og snúast oftar en ekki um yfirráð yfir ræktarlandi og eiga sér oft rætur í nýlendutímanum.
Mest lesið Illa brugðið en heill á húfi Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Erlent Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Erlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Fleiri fréttir Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Sjá meira