Krimmar gefa krimma í jólagjöf 22. desember 2008 04:00 Fangar á Litla-Hrauni fá hundruð bóka á mánudaginn. Flestar þeirra fara þó aftur út en fangarnir geta gefið sínum nánustu bók. um jólin.
Fangar á Litla-Hrauni fá góðan glaðning í dag þegar fulltrúar frá Félagi bókaútgefanda mæta með hundruð bóka sem ætlað er að verði pakkað inn til ættingja og vina, komið fyrir á bókasafni fangelsisins auk þess sem kokkarnir fá sinn skerf; úrval matreiðslubóka. Fangarnir á Litla-Hrauni eru nefnilega með sitt eigið eldhús og geta því gripið í uppflettiritin þegar svo á við. Kristján Bjarki Jónasson, formaður Félags bókaútgefanda, segir þetta þó aðallega vera gert til að gera föngum kleift að gefa sínum nánustu jólagjöf. „Við létum fangana útbúa óskalista og útgefendur tóku síðan mið af honum þegar þeir gáfu bækur til framtaksins,“ segir Kristján en bækurnar eru langflestar nýjar af nálinni þótt vissulega slæðist ein og ein gömul með. Allir bókaútgefendur lögðu sitt af mörkum og því er um mikið flóð bóka að ræða. Kristján segir flóruna vera ótrúlega fjölbreytta, þarna séu barnabækur og lífsreynslusögur og allt þar á milli. Aðspurður hvort að einhverjar glæpasögur fái að fljóta með segir Kristján það óhjákvæmilegt, þær skipi enda veglegan sess í jólabókaflóði landsmanna um hver jól. Skrifstofufyrirtækið Office One leggur síðan til gjafapappír, slaufur og kort svo að fangarnir geta sjálfir skreytt gjafirnar sínar. Auk þess leggur fyrirtækið til inneign á tungumálanámskeið en margir af erlendum föngum Litla-Hrauns hafa víst mikinn hug á að læra íslensku.
Mest lesið Opnar sig um andlát kærastans eftir skotárás í New York Lífið Umdeildum K-Pop stjörnum skipt út í Hörpu Lífið „Ég vil ekki líkjast öllum öðrum“ Tíska og hönnun Óvænt ökuferð að ógleymanlegu augnabliki Lífið „Hún reyndi aldrei að koma í stað mömmu“ Lífið „Við teljum að þetta verði sögulegir tónleikar“ Tónlist Ástir og átök milli Laufeyjar og Hudsons Williams Tónlist Clavicular fluttur á spítala vegna ætlaðrar ofskömmtunar Lífið „Svo kom í ljós að þetta var alls ekki amma mín“ Lífið Höfði í stóru hlutverki í æsispennandi stiklu Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Clavicular fluttur á spítala vegna ætlaðrar ofskömmtunar Oddvitar landsins takast á við Oddvitaáskorunina Óvænt ökuferð að ógleymanlegu augnabliki Umdeildum K-Pop stjörnum skipt út í Hörpu Opnar sig um andlát kærastans eftir skotárás í New York „Svo kom í ljós að þetta var alls ekki amma mín“ „Hún reyndi aldrei að koma í stað mömmu“ „Ég var mjög skrítinn krakki“ Bryndís Líf orðin móðir Yfirgaf yfirstéttina fyrir loftárásir, listaverkarán og sprengjugerð Oddvitaáskorunin: „Big Papa“ uppáhalds gælunafnið Fyrsti transmaðurinn sem fer með aðalhlutverk í íslenskri kvikmynd Þriðja dóttir Sverris Bergmanns og Kristínar Evu komin í heiminn Óborganlegt faðmlag Jóhanns og Sigurðar „Litlu hlutirnir gefa lífinu merkingu“ Mesta áskorunin að greinast með hryggskekkju Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Britney farin í meðferð Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Söngvari Massive Attack handtekinn á mótmælum Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Eilíf glötun bíður ekki endilega bóka í ruslagámum „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Krakkatía vikunnar: Skoffín, geitur og jarðarber Allir og amma þeirra í bókaklúbb Brúðkaupsdagurinn skilaði rúmum þremur milljónum Tónlist sem tekur á skömm og ótta með nokkrum blótsyrðum Sjá meira