Lífið

Ellefti ritstjóri Vals ófundinn

Dramatísk ákvörðun að segja starfi sínu á DV lausu.
Dramatísk ákvörðun að segja starfi sínu á DV lausu.

„Þeir eru tíu ritstjórarnir á þriggja ára ferli sem blaðamaður," segir Valur Grettisson blaðamaður.

Valur sagði upp störfum á DV í byrjun viku og samkvæmt tilkynningu unir hann ekki lygum og ritskoðun þar á bæ. Valur byrjaði á DV árið 2005 skömmu áður en allt varð brjálað vegna Ísafjarðarmáls. Ritstjórarnir Mikael Torfason og Jónas Kristjánsson hættu og við tóku Páll Baldvin Baldvinsson og Björgvin Guðmundsson. Valur fór á Blaðið og þar var Ásgeir Sverrisson skammlífur, við tók Sigurjón M. Egilsson og þá Trausti Hafliðason.

„Þá stökk ég yfir á Mannlíf og fékk Reyni Traustason yfir mig þar. Svo Þórarin Þórarinsson. Ég fór aftur á DV til Reynis og Jóns Trausta Reynissonar," segir Valur. Hann fór frá því að vera þjónn á La Primavera í blaðamennskuna. Veitingabransinn er skrautlegur en sveitasæla á við fjölmiðlana. „Ég hef lent í fáránlegustu hremmingum í blaðamennsku. En það jafnast ekkert fag á við það. Þetta er ástar/haturs-samband," segir Valur. Ef ellefti ritstjórinn hefur samband mun Valur stökkva án þess að hugsa sig um. „Ég er duglegur. Og elska starfið."

Dramatísk ákvörðun var að segja starfinu lausu nú þegar Ísland gengur í gegnum hyldjúpa kreppu. Valur er nýbakaður faðir og atvinnulausir blaðamenn á Íslandi nálgast hundrað.

„Ég á átta mánaða strák og konu sem þarf sína skó," grínast Valur. „En hún stóð með mér hundrað prósent. Allt traust, sem er heilagt milli blaðamanns og ritstjóra, var horfið. Ég treysti þeim feðgum ekki lengur," segir Valur sem lifir umbrotatíma. Faðir hans greindist með lungnakrabbamein fyrr í vetur og Valur segir huggun harmi gegn að geta varið með honum tíma en þurfa ekki að vera vakinn og sofinn í DV-hasar. „Já, og geta haldið heilög jól."- jbg












Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.