Innlent

Reglugerðir um íbúðalán taka gildi á morgun

MYND/Pjetur

Jóhanna Sigurðardóttir félags- og tryggingamálaráðherra setti í dag þrjár reglugerðir á grundvelli laga um húsnæðismál sem fela í sér hluta þeirra aðgerða sem ríkisstjórnin kynnti í gær.

Nú hækkar hámarkslán Íbúðalánasjóðs úr 18 milljónum í 20 milljónir króna. Þá er brunabótamat afnumið sem viðmið fyrir lánveitingum Íbúðalánasjóðs en þess í stað verður miðað við allt að 80 prósent af kaupverði eigna. Þessi breyting miðar ekki síst að því að auðvelda fólki kaup á minni eignum, einkum á höfuðborgarsvæðinu þar sem brunabótamat er oft á tíðum um 50 prósent af markaðsverði eigna eins og segir í tilkynningu ráðuneytisins.

Reglugerðirnar taka gildi á morgun og munu breytingarnar einnig ná til umsókna sem nú liggja fyrir hjá Íbúðalánasjóði en hafa ekki verið afgreiddar fyrir gildistöku reglugerðanna.


Tengdar fréttir

Eðlileg og skynsamleg viðbrögð við stöðunni

Gylfi Magnússon, dósent við viðskipta- og hagfræðideild Háskóa Íslands, segir aðgerðir ríkisstjórnarinnar á fasteigna- og fjármálamarkaði, sem kynntar voru í gær, eðlileg og skynsamleg viðbrögð við þeirri stöðu sem uppi er.

Mikilvægt að bankakerfinu sé rétt hjálparhönd

Guðni Ágústsson, formaður Framsóknarflokksins, segir nýjasta úspil ríkisstjórnarinnar sýna að Davíð hafi sigrað Golíat. Hann segir bankana hafa séð að þeir ráði ekki við stöðuna og fagnar þessu skrefi ríkisstjórnarinnar.

Steingrímur: Innrás bankanna var mislukkuð

Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna, segir ákvörðun ríkisstjórnarinnar um aðgerðir vegna erfiðrar stöðu á fasteigna- og fjármálamarkaði sýna að innrás bankanna á fasteignamarkað var mislukkuð.

ASÍ: Ástæða til að fagna aðgerðum ríkisstjórnarinnar

Alþýðusamband Íslands telur ástæðu til að fagna tillögu ríkisstjórnarinnar sem miða að því að blása lífi í húsnæðismarkaðinn. Eins og fram kom fyrr í dag hleypur ríkið undir bagga með bönkunum og lánar þeim fé til að lána til íbúðarkaupa og þá verður brunabótaviðmið lánveitinga Íbúðalánasjóðs afnumið og miðað við 80 prósent af kaupverði eignar.

Jóhanna: Bankarnir fóru offari

Jóhanna Sigurðardóttir, félagsmálaráðherra, segir að viðskiptabankarnir hafi farið offari á fasteignamarkaði fyrir fjórum árum. Hún vonar að forystumenn bankanna læri af reynslunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×