ASÍ: Ástæða til að fagna aðgerðum ríkisstjórnarinnar 19. júní 2008 17:21 Grétar Þorsteinsson er forseti ASÍ. MYND/GVA
Alþýðusamband Íslands telur ástæðu til að fagna tillögu ríkisstjórnarinnar sem miða að því að blása lífi í húsnæðismarkaðinn. Eins og fram kom fyrr í dag hleypur ríkið undir bagga með bönkunum og lánar þeim fé til að lána til íbúðarkaupa og þá verður brunabótaviðmið lánveitinga Íbúðalánasjóðs afnumið og miðað við 80 prósent af kaupverði eignar. Enn fremur hækka hámarkslán úr 18 í 20 milljónir króna.ASÍ segir í tilkynningu að aðilar vinnumarkaðarins og sveitarfélögin hafi fundað með ríkisstjórninni í dag þar sem forsætisráðherra hafi kynnt aðgerðirnar. „Forsetar Alþýðusambands Íslands lýstu áhyggjum sínum af horfum í atvinnumálum á fundinum og kom fram að stjórnvöld deila þeim áhyggjum með ASÍ og telja brýnt að bregðast við í tíma," segir í tilkynningu ASÍ.Þar segir einnig að ástæða sé til að fagna tillögum ríkisstjórnarinnar sem miði að því að blása lífi í húsnæðismarkaðinn með því m.a. að auðvelda fólki aðgengi að lánsfé. „Í tillögum ríkisstjórnarinnar sem kynntar voru í dag er verið að bregðast við ýmsum af þeim atriðum sem Alþýðusambandið hefur lagt áherslu á í sínum málflutningi að undanförnu. Forsetar Alþýðusambandsins ítrekuðu á fundinum að þessar aðgerðir megi ekki skerða getu Íbúðarlánasjóðs til að sinna sínu hlutverki," segir einnig í tilkynningunni.
Mest lesið Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Óttast að yfir áttatíu hafi farist Erlent Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Innlent Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Erlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Erlent „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ Innlent Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Innlent Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Innlent Fleiri fréttir Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Búið að opna fyrir umferð að nýju eftir bilunina Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Sjá meira