Hugmyndin kom frá dularfullum stað 4. desember 2008 09:57 „Dúkkurnar eru tæki til að fjalla um það sem er mér og flestum er hugleikið. Það er nándin við aðrar manneskjur," segir rithöfundurinn Guðrún Eva Mínervudóttir.
Vísir hafði samband við rithöfundinn Guðrúnu Evu Mínervudóttur sem er tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna fyrir skáldsöguna Skaparinn. Þar lýsir hún átökum venjulegs fólks við sérkennilegar aðstæður þar sem hjálpin berst stundum úr óvæntri átt. „Ástarþakkir. Jú ég er bara himinlifandi. Alveg. Svo gaman," svarar Guðrún Eva þegar Vísir óskar henni til hamingju með tilnefninguna. Hvernig datt þér hug að skrifa um dúkkur? ,,Já, hvaðan koma hugmyndirnar yfirhöfuð? Það er svo dularfullt. Mér finnst eins og þær komi frá einhverjum heilögum stað. Í þessu tilviki var ég stödd í París að skrifa og var að lesa glansblað. Þar var grein um silikondúkkur og ég veðraðist öll upp því þetta var allt öðruvísi heimur en ég hafði ímyndaði mér." Sat uppi með glanstímaritið ,,Ég hellti óvart tei yfir greinina og neyddist til að rífa blautar blaðsíðurnar úr blaðinu og taka þær með mér heim. Þannig kom það til að ég sat uppi með þær og var sífellt minnt á þetta spennandi söguefni," svarar Guðrún Eva. „Það er eitthvað við þessar dúkkur. Mikill óhugnaður sem umvefur þær. Fólki bregður þegar það veit um hvað bókin er og verður forvitið." Líkar vel við rithöfundinn „Ég þekki fátt annað en já ég virðist alltaf fá hugmynd að nýrri bók og læt mig ekki dreyma um að komast í annað djobb," svarar Guðrún Eva aðspurð hvort henni líki rithöfundastarfið. „Ég er ekki einmana á meðan ég er að vinna. Það er alltaf meiri gleði heldur en þjáning. Orðin koma auðveldlega til mín." „Þessa bók var ég þrjú ár með og talsvert af þeim tíma fór í rannsóknarvinnu. Þá þarf að endurskrifa og leyfa undirvitundinni að vinna sitt verk." Annasamur desember „Það er mikil eftirsókn eftir höfundum að lesa núna í skammdeginu og ég les upphátt fyrir fólk næstum á hverjum degi og stundum oft á dag. Mér finnst það frábært," segir Guðrún Eva áður en kvatt er. Hér má sjá umsagnir um Skaparann.
Mest lesið Ekkert náð að æfa sig en ætlar að kýla á Bakgarðshlaupið Lífið „Bakkus nær ekki þeim verstu af okkur, virðist helst velja þá bestu“ Lífið Hvað veistu um... fræga menn sem heita Robert? Lífið „Það tók viku að vinna í Rúriki“ Tónlist Barnastjarnan orðin tveggja barna móðir Lífið Ef þú ert í þessum hópi ættir þú ekki að taka lýsi Lífið Ísak Bergmann og Agnes Perla eiga von á barni Lífið Skorar á Kraft að jafna framlag sitt til neyðaraðstoðar á Gasa Lífið Systur skapa heilsusamfélag fyrir konur á öllum æviskeiðum Lífið samstarf Írar ekki með í Eurovision annað árið í röð Tónlist Fleiri fréttir Ekkert náð að æfa sig en ætlar að kýla á Bakgarðshlaupið Barnastjarnan orðin tveggja barna móðir Hvað veistu um... fræga menn sem heita Robert? Ísak Bergmann og Agnes Perla eiga von á barni „Bakkus nær ekki þeim verstu af okkur, virðist helst velja þá bestu“ Skorar á Kraft að jafna framlag sitt til neyðaraðstoðar á Gasa Ef þú ert í þessum hópi ættir þú ekki að taka lýsi Karl Th. Birgisson er látinn Lena Dunham orðin mamma með hjálp staðgöngumóður Fóru áttatíu prósent fram úr áætlun Leiðir skilja hjá Siggu Dögg og Sævari Eyjólfs Kampakát yfir kampavíni og kavíar Amanda Seyfried og Thomas Sadoski skilin Hafi ekki sjálfur sparkað Macklemore: „Ég myndi aldrei bregðast aðdáendum“ Hundrað ára virðulegt setur með grænu baði og gufu Bob Mackie er látinn Friðrik Þór og Jóna Vigdís ástfangin Macklemore tjáir sig: „Fólk er drepið í dag og fólk verður drepið á morgun“ Æstir í nektarmyndir Mörthu Stewart Vakna við Star Wars-lagið alla morgna Hvað veistu um… Titanic? Húðdrottning bauð í gellugusu Ed Sheeran sparkar Macklemore Hið alræmda „Epstein drap sig ekki“-samsæri Ein pilla dró Panettiere til dauða Heldur sig til hlés og lifir skírlífi Vala Matt kom heljarinnar búslóð fyrir í sextíu fermetra íbúð Stjörnulífið: Í fyrsta skipti í bikiníi í útlöndum „Ég byrjaði að lesa kaflann og fór bara að gráta“ Skúli Jón og Jennifer gengin í hnapphelduna Sjá meira