Erlent

Kínverjar almennt ánægðir með stefnu landsins

Ný skoðanakönnun í Kína sýnir að landsmenn þar eru almennt mjög ánægðir með þá stefnu sem landið er á og hinn mikla efnhagslega uppgang sem þar hefur verið undanfarin áratug.

Hinsvegar kemur einnig fram í könnuninni að Kínverjar hafa miklar áhyggjur af hækkandi vöruverði, mengun og því að bilið milli ríkra og fátækra breikkar stöðugt.

Þá kemur fram að 75% aðspurðra eru ánægð með þá stefnu stjórnvalda að hver hjón megi aðeins eignast eitt barn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×