Kráareigendur mótmæla áfengisgjaldinu harðlega 18. desember 2008 21:09 Kormákur Geirharðsson annar eigenda Ölstofu Kormáks og Skjaldar er í félagi kráareigenda.
Félag Kráareigenda mótmælir harðlega aðförum stjórnvalda að veitingastöðum með hækkun áfengisgjalda.Með þessari hækkun eru stjórnvöld að beina viðskiptum frá veitingahúsum, sem eru einkarekin fyrirtæki, til vínbúða, sem eru í eigu ríkisins. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá félaginu. Þar segir ennfremur að með þessu sé verið að stuðla að miklum erfiðleikum í rekstri veitingahúsa, enda deginum ljósara að veitingamenn neyðist til að mæta hækkun áfengisgjalda með frekari verðhækkunum en hafa nú þegar átt sér stað í kjölfar veikingar krónunnar og hækkunum birgja. „Með þessu eru stjórnvöld að beina neyslu áfengis í heimahús með þeim hætti að viðskiptavinir veitingastaða koma seinna í miðborgina og undir meiri áhrifum en áður sem eykur álag á lögregluna.Lögreglan mun þar með bæði þurfa að taka á auknu álagi í miðborginni auk þess að þurfa að sinna fleiri verkefnum í úthverfum." Þá segir í yfirlýsingunni að niðurstaða nefndar um betri miðborg, sem starfrækt var á vegum Reykjavíkurborgar og í samráði við hagsmunaaðila sem hlut eiga að máli, var að veitingastaðir væru betur til þess fallnir að sinna þeim sem kjósa að njóta áfengis en einstaklingar í heimahúsum. „Auk þess væri öryggi manna betur borgið innan veggja veitingastaðanna. Þá var ennfremur sett fram það markmið í skýrslu nefndarinnar að beina fólki fyrr niður í miðbæ, en þessu markmiði er augljóslega stefnt í hættu verði áfengi dýrara á veitingastöðum en það er nú þegar. Þessu til viðbótar má leiða líkur að því að veitingastaðir miðborgarinnar muni fá skellinn í umfjöllun fjölmiðla, verði áðurnefnd vandamál að veruleika. Hækkun verðlags getur auk þess haft umtalsverð áhrif á umfang ferðaþjónustu hér á landi, og því viðbúið að verslun ferðamanna á veitingahúsum bæjarins dragist saman, þegar yfirvofandi verðhækkanir áfengis verða að veruleika." Þá segir að veigingamenn hafi tekið mikinn skell á undanförnum árum og megi þar benda á að reykingarbannið hafi verið illa ígrundað og í raun illa unnið þannig að ekki hefur enn skapast um það sátt. „Áfengisgjald á sterkt áfengi hækkaði um 15% árið 2002 og svo um 7% árið 2004, og nú bætist við þriðja hækkunin á einungis 6 árum. Vert er að geta þess að í nágrannalöndum okkar er áfengisgjald margfalt lægra en það er hér á landi, jafnvel fyrir þessa hækkun. Með nýsamþykktri hækkun áfengisgjalda teljum við að vegið sé alvarlega að okkar starfsumhverfi og viljum benda á að í gegnum tíðina hefur veitingastarfsemi sætt einna mestum álögum frá ríki og borg af öllum stéttum landsins. "
Mest lesið Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Innlent Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Erlent Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Lífið Fleiri fréttir Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Á morgun mega hommar gefa blóð Tekjuáætlun verulega undir áætlun „Þetta mun auka enn á vald Ríkisútvarpsins“ Metfjöldi kvartana Ekkert ákveðið á fundinum: „Það væru fráleit viðbrögð við þessari niðurstöðu“ Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Sjá meira