Fær langþráða hvíld í janúar 18. desember 2008 06:45 Fékk Gullplötu í jólaþorpinu á laugardaginn. Lúðvík Geirsson, bæjarstjórinn í Hafnarfirði, afhendir Palla fyrstu gullplötu jólaplötuflóðsins í ár.
Páll Óskar er uppteknasti maður landsins. Hann keyrir sig út nú fyrir jólin en tekur langþráð frí eftir áramót. „Síðasti mánuður er búinn að vera eins og „groundhog-day" hjá mér. En ég næ þessu með því að borða hollan mat og fara í ræktina þegar ég get," segir Páll Óskar. Hann er nú á bullandi vertíð og þarf að selja að minnsta kosti tíu þúsund eintök af Silfursafninu sínu til að ná upp í kostnað. „Þegar ég gerði kostnaðaráætlun í sumar - mjög heilbrigða áætlun - stóð evran í 80 krónum. Þá kostaði 2,8 milljónir íslenskar að búa til 10.000 eintök af settinu. Í nóvember þegar ég leysti út plöturnar var evran komin í 180 krónur og heildarupphæðin orðin 5,8 milljónir. Þar að auki þurfti ég að borga þetta á borðið því fyrirtækið í Austurríki sem hefur verið í viðskiptum áratugum saman við Íslendinga treysti ekki íslenskum aðilum lengur. Takk, Davíð Oddsson og seðlabankastjórn, takk, ríkisstjórn, takk, útrásarvíkingar og takk, Fjármálaeftirlit!" Þótt Palli sé hundfúll með hina handónýtu krónu, er hann bjartsýnn á að ná upp í kostnað. Búið er að dreifa 14.000 eintökum og Palli hefur látið framleiða annað upplag af plötunni. Að vanda er hann duglegasti maðurinn í bransanum og þeytist út um allt. „Monika vinkona mín sér um bókhaldið og dreifinguna og ef það koma stórar pantanir ber ég kassana inn með henni. Ég er að klára hringferð um landið og ætla að enda hana á sama stað og hún hófst, núna á laugardaginn 20. desember á Nasa. Ég og Monika höfum spilað jólaprógrammið mikið á virkum dögum og svo er alltaf diskó um helgar. Það eru áritanir nánast á hverjum degi. Í hvert skipti árita ég svona 100 diska og 500 ókeypis plaköt. Þetta eru engar ýkjur!" Palli sér fram á verðskuldað frí eftir jólatörnina. „Ég ætla að sofa í janúar. Skelli mér til LA í fyrsta skipti á ævinni og fæ að vera þar í íbúð sem vinur minn á. Ég sé fram á að liggja bara rotaður í mánuð." drgunni@frettabladid.is
Mest lesið „Þetta lið á Akureyri vildi ekki gefa mér gullið“ Lífið „Ég hef grátið því að ég var svo skotin í þér“ Lífið Gurrý um svuntuaðgerðina: „Jesús hvað þetta er búið að vera erfitt“ Lífið Opnar sig um andlát kærastans eftir skotárás í New York Lífið Clavicular fluttur á spítala vegna ætlaðrar ofskömmtunar Lífið Umdeildum K-Pop stjörnum skipt út í Hörpu Lífið Uppeldið hjá ömmu og afa áhrifamest Lífið „Ég vil ekki líkjast öllum öðrum“ Tíska og hönnun „Við teljum að þetta verði sögulegir tónleikar“ Tónlist Óvænt ökuferð að ógleymanlegu augnabliki Lífið Fleiri fréttir Mætti í þáttinn til að vinna sér inn fyrir þurrkara Frumfluttu lag Barnamenningarhátíðarinnar fyrir káta krakka „Ég hef grátið því að ég var svo skotin í þér“ Uppeldið hjá ömmu og afa áhrifamest „Þetta lið á Akureyri vildi ekki gefa mér gullið“ Gurrý um svuntuaðgerðina: „Jesús hvað þetta er búið að vera erfitt“ Clavicular fluttur á spítala vegna ætlaðrar ofskömmtunar Oddvitar landsins takast á við Oddvitaáskorunina Óvænt ökuferð að ógleymanlegu augnabliki Umdeildum K-Pop stjörnum skipt út í Hörpu Opnar sig um andlát kærastans eftir skotárás í New York „Svo kom í ljós að þetta var alls ekki amma mín“ „Hún reyndi aldrei að koma í stað mömmu“ „Ég var mjög skrítinn krakki“ Bryndís Líf orðin móðir Yfirgaf yfirstéttina fyrir loftárásir, listaverkarán og sprengjugerð Oddvitaáskorunin: „Big Papa“ uppáhalds gælunafnið Fyrsti transmaðurinn sem fer með aðalhlutverk í íslenskri kvikmynd Þriðja dóttir Sverris Bergmanns og Kristínar Evu komin í heiminn Óborganlegt faðmlag Jóhanns og Sigurðar „Litlu hlutirnir gefa lífinu merkingu“ Mesta áskorunin að greinast með hryggskekkju Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Britney farin í meðferð Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Söngvari Massive Attack handtekinn á mótmælum Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Eilíf glötun bíður ekki endilega bóka í ruslagámum Sjá meira