Erlent

Karadzic bjó í Belgrad

Radovan Karadzic bjó í Belgrad í Serbíu og stundaði óhefðibundnar lækningar þegar hann var handtekinn. Hann vann á eigin stofu og hafði tekið upp nafnð Dragan Dabic.

Hann var handtekinn í gær, nærri Belgrad, af mönnum sem leituðu Ratkos Mladic, sem einnig er eftirlýstur fyrir stríðsglæpi. Karadzic hafði þá verið á flótta í meira en áratug. Hann er sakaður um stríðsglæpi og fjöldamorð í Srebrenica árið 1995 og hefur verið einn mest eftirlýsti maður í Evrópu undanfarinn áratug.












Tengdar fréttir

Karadzic handtekinn

Yfirvöld í Serbíu hafa handtekið einn af mest eftirlýstu stríðsglæpamönnum seinni tíma, Radovan Karadzic. Hann var samstundis færður fyrir stríðsglæpadómstól í Belgrad í samræmi við alþjóðlega stríðsglæpasáttmála. Þetta kemur fram í tilkynningu frá serbneskum yfirvöldum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×