Frásögn af flótta Annþórs vakti kátínu í réttarsal Andri Ólafsson skrifar 3. júní 2008 13:06 Annþór Kristján Karlsson
Annþór Kristján Karlsson bar vitni í hraðsendingarmálinu í dag en aðalmeðferð fer nú fram í Héraðsdómi Reykjavíkur. Annþór neitar sök en hann er ákærður fyrir að fjármagna og skipuleggja smygl á miklu magni fíkniefna til landsins. Fjórir eru ákærðir í málinu en tveir þeirra, bræðurnir Jóhannes og Ari Gunnarssynir, segja að Annþór hafi verið höfuðpaurinn í smyglinu. Þessu neitaði Annþór staðfastlega í dag. Við skýrslutökurnar í morgun spilaði Kolbrún Sævarsdottir saksóknari nokkrar upptökur af hleruðum símtölum sem Annþór átti við félaga sína um málið. Í einu þeirra kemur flótti Annþórs úr gæsluvarðhaldi til tals en eins kunnugt er strauk hann af lögreglustöðinni á Hverfisgötu þegar hraðsendingarmálið var til rannsóknar. Hann fannst skömmu síðar í skáp á heimili félaga síns. Í símtalinu sem spilað var í dag lýsti Annþór því hvernig hann losaði öryggisglet, vírnet og fleira til þess að komast út um gluggann á lögreglustöðinni og strjúka. Á upptökum heyrist Annþór og félagi hans hlæja mikið af þessu uppátæki. "Þetta er húmor," sagði Annþór meðal annars og skellti up úr. Þeir sem hlýddu á þessar upptökur, þrír dómarar, sækjandi og verjendur, brostu einnig í kampinn enda frásögn Annþórs af uppátækinu afar spaugileg. Þegar Annþór hafði lokið máli sínu var Tómas Kristjánsson kallaður til vitnis. Tómas var starfsmaður hraðsendingarfyrirtækisins UPS oger ákærður fyrir að hafa skipulagt smyglið en samkvæmt ákæru átti hann að taka við fíkniefnunum þegar þau komu til lands með hraðsendingu. Tómas neitar sök í málinu en besti vinur hans frá barnæsku, Jóhannes Gunnarsson, bar skömmu áður vitni um það að Tómas hefði verið lykilmaður í undirbúningi og framkvæmd smyglsins ásamt Annþóri Kristjáni Karlssyni. Tómas sagði að framburður Jóhannesar væri svik og það væri líkt og að hann hefði verið stunginn í bakið. Hann gat hins vegar engar skýringar gefið fyrir því afhverju hans besti vinur væri að bera hann svo þungum sökum. Vitnaleiðslum lýkur í dag og þá tekur við munnlegur málflutningur verjenda. Að honum loknum munu þrír dómarar málsins taka málið til dóms. Niðurstöðu þeirra er að vænta innan þriggja vikna.
Tengdar fréttir Bræðurnir segja Annþór hafa skipulagt smyglið Ari Gunnarsson annar bræðranna í Hraðsendingarmálinu svokalla, brast í grát þegar hann bar vitni í málinu í dag. Honum og þremur öðrum er gefið að sök stórfellt fíkniefnabrot með því að hafa staðið að innflutningi á 4,6 kílóum á amfetamíni og nærri 600 gömmum af kókaíni frá Þýskalandi. Ari og bróðir hans, Jóhannes, bera báðir að Annþór Kristján Karlsson hafi verið skipuleggjandi smyglsins og sá sem fjármagnaði fíkniefnakaupin. Þeir bræður segjast aðeins hafa verið milligöngumenn á milli Annþórs og Tómasar Kristjánssonar sem starfaði hjá hraðsendingarfyrirtækinu UPS en efnin voru send með hraðsendingu á vegum þess. 3. júní 2008 11:20 Mest lesið Kviðdómandi neitar að fylgja reglum um sönnunarbyrði Erlent Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Erlent Skrifað undir viljayfirlýsingu vegna jarðganga til Eyja Innlent Eyvindur P. Eiríksson látinn Innlent Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Erlent Tveimur bjargað úr göngum níu dögum eftir skyndiflóðin Erlent Einn enn með stöðu sakbornings vegna E. coli sýkingar á Mánagarði Innlent Óttast að yfir áttatíu hafi farist Erlent Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Innlent Fleiri fréttir Langreyðarkvótinn mun tæplega nást Fylgdarakstur um Hvalfjarðargöng að næturlagi í næstu viku Eyvindur P. Eiríksson látinn Lægðardrag teygir sig yfir landið Myndir: Opnunarhóf nýs Kvennaathvarfs Tekinn á 190 þar sem má aka á 90 kílómetra hraða Einn enn með stöðu sakbornings vegna E. coli sýkingar á Mánagarði Skrifað undir viljayfirlýsingu vegna jarðganga til Eyja Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Búið að opna fyrir umferð að nýju eftir bilunina Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Sjá meira
Bræðurnir segja Annþór hafa skipulagt smyglið Ari Gunnarsson annar bræðranna í Hraðsendingarmálinu svokalla, brast í grát þegar hann bar vitni í málinu í dag. Honum og þremur öðrum er gefið að sök stórfellt fíkniefnabrot með því að hafa staðið að innflutningi á 4,6 kílóum á amfetamíni og nærri 600 gömmum af kókaíni frá Þýskalandi. Ari og bróðir hans, Jóhannes, bera báðir að Annþór Kristján Karlsson hafi verið skipuleggjandi smyglsins og sá sem fjármagnaði fíkniefnakaupin. Þeir bræður segjast aðeins hafa verið milligöngumenn á milli Annþórs og Tómasar Kristjánssonar sem starfaði hjá hraðsendingarfyrirtækinu UPS en efnin voru send með hraðsendingu á vegum þess. 3. júní 2008 11:20