Erlent

Farc-skæruliðar sleppa átta gíslum

Farc-skæruliðasamtökin í Kólombíu hafa leyst úr haldi 8 af 10 gíslum sem þeir rændu í síðustu viku. Reiknað er með að Farc muni krefjast lausnargjald fyrir þá tvo sem eftir eru.

Það var Rauði krossinn sem hafði milligöngu um að gíslarnir voru látnir lausir. Þetta er stærsta aðgerð Rauða krossins af þessu tagi í Kolómbíu síðan að líknarsamtökin gagnrýndu stjórnvöld þar í landi fyrir að hafa notað merki þeirra við björgun Ingrid Betancourt og fleiri gísla fyrr í mánuðinum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×