Segjast hafa hert leitina að Mladic 7. ágúst 2008 12:09
Stjórnvöld í Serbíu hafa hert mjög leitina að hershöfðingjanum Ratko Mladic. Hann stjórnaði persónulega fjöldamorðunum í Srebrenica í Bosníustríðinu. Ratko Mladic og Radovan Karadzic voru þeir Serbar sem stríðsglæpadómstóll Sameinuðu þjóðanna hefur lagt höfuðáherslu á að fá í sínar hendur. Þeir hafa báðir verið ákærðir fyrir þjóðarmorð og glæpi gegn mannkyninu fyrir framferði sitt í Bosníustríðinu. Meðal annars báru þeir ábyrgð á morðum á um áttaþúsund múslimum í bænum Srebrenica, sem hafði verið lýstur griðastaður Sameinuðu þjóðanna. Einnig hafa þeir verið ákærðir fyrir að bera ábyrgð á 43 mánaða umsátri um Sarajevo. Ratko Mladic stjórnaði persónulega fjöldamorðunum í Srebrenica. Til eru sjónvarpsmyndir af honum þar sem hann gengur um meðal íbúanna og lofar þeim að allt verði í lagi. Það eigi bara að flytja þá á öruggan stað. Mladic klappar börnum á kollinn og hann og hermenn hans gefa þeim sælgæti. Fólkið fór því upp í rúturnar og var flutt beint á aftökustað þar sem það var myrt. Innganga Serbíu í Evrópusambandið er háð því að stríðsglæpamenn landsins komi fyrir dóm. Ný ríkisstjórn landsins leggur höfuðáherslu á það og Radovan Karadzic var handtekinn fyrir hálfum mánuði. Fulltrúi ríkisstjórnarinnar gagnvart stríðsglæpadómstólnum sagði fréttamönnum í dag að margra nýrra leiða væri nú leitað til þess að hafa upp á hershöfðingjanum. Varnarmálaráðherra Serbíu hvatti Mladic til að gefa sig fram. Óþolandi væri að hann héldi allri þjóð sinni í gíslingu lengur. Víst þykir að hershöfðinginn njóti aðstoðar þjóðernissinna við að fela sig, af þeim er ennþá nóg í Serbíu.
Mest lesið Munaði litlu að nýliði skákaði borgarstjóra Innlent „Fyrst og fremst er verið að hafna oddvitanum“ Innlent Icelandair aflýsir flugferðum Innlent Þjóðvarðlið virkjað eftir að ICE skaut mann til bana Erlent Maðurinn er fundinn Innlent Skotinn til bana: Myndefnið þvert á orð ráðherrans Erlent Gripnir á 165 á áttatíu götu og á 157 á sextíu götu Innlent Fyrrverandi yngsti þingmaður sögunnar skiptir um flokk og fer fram Innlent Kerfið hafi brugðist Innlent „Örstutt þunglyndi yfir niðurstöðunum“ Innlent Fleiri fréttir Skotinn til bana: Myndefnið þvert á orð ráðherrans Þjóðvarðlið virkjað eftir að ICE skaut mann til bana Annar maður skotinn til bana af ICE Hótar að setja hundrað prósenta toll á Kanada „Eftir þetta getur enginn treyst honum“ Tugþúsundir mótmæltu ICE Funda um frið í skugga banvænna árása næturinnar Ungur drengur látinn eftir hákarlaárás Grinch siglt til hafnar í Marseille Ólympíufarinn eftirlýsti gómaður eftir áratug á flótta Bein útsending: Þorgerður ávarpar mannréttindaráðið vegna Íran Viðurkenna loks, fyrir mistök, að Úkraínumenn hafi sökkt Moskvu Repúblikanar leita aftur á náðir Musks Leysir upp þingið og boðar til kosninga í Japan Sex særðir eftir hnífaárás á mótmælum í Antwerpen Rússar, Úkraínumenn og Bandaríkjamenn funda í fyrsta sinn við sama borð Trump fer í fýlu og dregur boð sitt til Carney til baka „Við getum gert það sem við viljum“ Viti ekki hvað er í samningi NATO sem semji ekki fyrir hönd Grænlands Frakkar riðu á vaðið og tóku skuggaskip Rússa Sendi Evrópu tóninn: „Þú mótar ekki nýja heimsmynd með eintómum orðum“ Draumur Trumps um „Rivíeru Mið-Austurlanda“ lifir enn Samkomulagið sem ekkert samkomulag er um Drógu mann út á nærbuxunum sem hafði ekkert til saka unnið Trump kynnti friðarráðið Sýknaður af ásökunum um aðgerðaleysi þegar nítján börn dóu Rutte samdi ekki við Trump fyrir hönd danska konungsríkisins Handtóku fimm ára dreng og föður hans og sendu til Texas Samkomulagið veiti Bandaríkjunum aðgang að auðlindum Grænlands „Ramma framtíðarsamkomulags“ náð um Grænland og hætt við tolla Sjá meira