Erlent

Verkfall yfirvofandi hjá Boeing

MYND/AP

Flugvélasmiðir Boeing-verksmiðjanna fara í verkfall eftir tvo daga semjist ekki með þeim og vinnuveitandanum um kaup og kjör fyrir þann tíma.

Tilboði verksmiðjanna um nýjan þriggja ára samning var hafnað með 80 prósentum atkvæða og studdu 87 prósent verkfallsaðgerðir. Um er að ræða 27.000 starfsmenn í þremur ríkjum Bandaríkjanna.

Komi til verkfalls mun það tefja smíði hinnar nýju Boeing 787 Dreamliner enn frekar auk þess að kosta Boeing-verksmiðjurnar sem nemur hundruðum milljarða króna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×