Erlent

Pútín enn með völd í utanríkismálum

Medvedev virðist óðfús láta Pútín, fyrrum yfirmanni sínum, meiri völd í té.
Medvedev virðist óðfús láta Pútín, fyrrum yfirmanni sínum, meiri völd í té.

Forseti Rússlands, Dmitry Medvedev hefur látið forsætisráðherra landsins, Vladimir Pútín í hendur völd í utanríkismálum landsins. Er þetta í fyrsta sinn í sögu Rússlands sem forsætisráðherra landsins getur tekið þátt í að móta utanríkisstefnu Rússlands.

Þessi nýja valdaskipting í utanríkismálum Rússlands var ákveðin um seinustu helgi en gerð kunngjörð seinna í vikunni. Hefur þetta vakið upp vangaveltur um hver virkilega hafi völdin í Rússlandi. Talið er að Pútín sé sá sem raunverulega hafi valdasprotanna í hendi sér. Til marks um það er bent á að hann hefur kallað reyndan starfsmann heim frá Bandaríkjunum til þess að styrkja sitt eigið starfslið heima fyrir.

Við kynningu þessarar nýjungar í utanríkismálum Rússa fyrir starfsmönnum utanríksimála sagði Medvedev að Rússland væri vel fært að axla ábyrgð bæði heima fyrir og á alþjóðalegan mælikvarða. Komu þessar athugasemdir í kjölfar þess að Rússland beitti neitunarvaldi sínu gegn þeirri tillögu innan öryggisráðs Sameinuðu Þjóðanna að beita Simbabve refsiaðgerðum.

Rússum og Vesturlöndum hefur stangast á í stórum málum eins og varðandi eldflaugavarnir og útbreiðslu Nató. Rússland hefur það tromp í hendi sér að eiga miklar orkubirgðir sem færa þeim völd á silfurfati á nú þegar olíverð er í sögulegu hámarki.

Þetta kemur fram á fréttavef Sky. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×