Erlent

Maóistar ekki í ríkisstjórn

Ramraja Prasan Singh, forsetaframbjóðandi Maóista.
Ramraja Prasan Singh, forsetaframbjóðandi Maóista.

Maóistar í Nepal munu ekki koma til með að taka þátt í nýrri ríkisstjórn þar í landi þrátt fyrir að vera með flest þingsæti. Búist var við að Maóistar myndu leiða nýja ríkisstjórn en þeir ákváðu að vera í stjórnarandstöðu eftir að frambjóðandi þeirra Ramraja Prasan Singh tapaði í forsetakosningum á mánudaginn. Maóistar segja að bandalag andstöðuflokkanna séu að halda þeim frá völdum.

Talið er að ef Maóistar fari í stjórnarandstöðu muni það hafa í för með sér enn eina stórnmálakreppuna í Nepal. Nú gæti sú staða komið upp að Nepal verði stjórnað af óstöðugu bandalagi flokka með ólíka hugmyndafræði á meðan Maóistar sitji úti í kuldanum.

Forsetaframbjóðandi Maóista, Ramraja Prasan Singh tapaði fyrir frambjóðanda Framfaraflokksins í Nepal, Ram Baran Yadav, með 282 atkvæðum gegn 308 atkvæðum Yadav í nepalska þinginu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×