Erlent

Dönsk ungmenni flykkjast enn í svall á Sunny Beach

Sunny Beach í Búlgaríu.
Sunny Beach í Búlgaríu.

Ferðamannastaðurinn Sunny Beach í Búlgaríu laðar enn að sér dönsk ungmenni þrátt fyrir að staðurinn hafi fengið mjög slæma umfjöllun í dönskum fjölmiðlum og víðar. Er hann annálaður fyrir svall og óheflaða skemmtanamenningu. Ofbeldi og nauðganir hafa einnig verið tíð þar og hefur staðurinn til dæmis gengið undir nafninu Nauðgunarströndin í norrænum fjölmiðlum.

Fjórar stórar ferðaskrifstofur í Danmörku sinna ferðum til Sunny Beach og er engin niðursveifla í sölu þangað samkvæmt fréttavef Berlinske Tidende. Búist var við dræmri sölu eftir að fjölmiðlar í Danmörku höfðu vakið athygli á miklu svalllífi þar en salan hefur hins vegar verið með eindæmum góð.

Félagsfræðingurinn Johannes Andersen segir í viðtali við Berlinske Tidende að líklegast hafi hin neikvæða umfjöllun fremur laðar unglinga að Sunny Beach en að halda þeim frá staðnum. Hann telur að umræðan um óhóflega drykkju, óábyrgt kynlíf og jafnvel ofbeldi geri það að verkum að unglingar verði spennari fyrir staðnum en ella.

Vinsælast er nú á meðal íslenskra framhaldsskólanema að fara í útskriftarferðir til Tyrklands samkvæmt upplýsingum frá Sambandi íslenskra framhaldsskólanema sem vissu ekki til þess að íslenskir nemar hefðu farið í útskriftarferðir til Sunny Beach.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×