Hrói Höttur endurfæðist í Grikklandi Atli Steinn Guðmundsson skrifar 10. september 2008 08:20 MYND/Netið
Hrói Höttur er genginn í endurnýjun lífdaganna í Norður-Grikklandi þar sem grímuklæddir hugsjónamenn mótmæla hækkandi verðlagi á róttækan hátt. Stórmarkaðir í grísku borginni Þessaloníku hafa með reglulegu millibili orðið fyrir barðinu á allsérkennilegum ræningjum. Þar eru á ferðinni um 20 manna hópar, oftast grímuklæddir, sem ryðjast inn í markaðina um hábjartan dag og ræna þar matvælum með miklum bægslagangi. Ræningjarnir fara svo með feng sinn út á götu og dreifa honum þar meðal almennings. Þarna eru á ferð anarkistar, eða stjórnleysingjar, sem vilja með athæfi sínu mótmæla þeim miklu verðhækkunum sem dunið hafa á grískum almenningi upp á síðkastið en verðbólga í Grikklandi mælist nú 4,9 prósent - eitthvað sem fæstir Íslendingar tækju eftir en er engu að síður mesta verðbólga sem Grikkir hafa upplifað í áratug. Verslunareigendur hafa tekið háttseminni með jafnaðargeði og benda á að enginn hafi meiðst og aldrei hafi peningum verið rænt. Fyrir kemur að hóparnir ráðast til atlögu ógrímuklæddir og kemur það þá flestum í opna skjöldu að ræningjarnir eru konur.
Mest lesið Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Innlent Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent Fleiri fréttir Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Marco Rubio á leið til Íslands Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Sjá meira