Hafin er undirskriftasöfnun í Norðlingaholti gegn fyrirhuguðu áfangaheimili sem stefnt er að hefji starfsemi í haust.
,,Ég er skelfingu lostin yfir þessari ákvörðun," segir Díana Fjölnisdóttir, íbúi í Hólmvaði, en fyrirhugað heimili verður í Hólavaði.
Díana gagnrýnir borgaryfirvöld fyrir að setja áfangaheimili í mitt íbúðarhverfi án þess að málið hafi farið í gegnum grenndarkynningu.
,,Það er allskonar óþveralýður sem fylgir þessu vesalings fólki," segir Díana og bætir við að sér þyki eðlilegra að starfsemi eins og þessi fari fram í dreifbýli þar sem fólk ,,geti andað að sér hreinu lofti."
Jórunn Frímannsdóttir, formaður velferðarráðs Reykjavíkur, segir að þjónustumiðstöð borgarinnar í hverfinu og Heilsuverndarstöðin muni kynna íbúum væntanlega starfsemi þegar samkomulag liggur fyrir.
,,Það er vont þegar heimili eins og þetta fara í umræðuna með þessum hætti áður en búið er að kynna þau fyrir íbúum í nágrenninu," segir Jórunn og bætir við að fyrirhugað heimili er ætlað einstaklingum sem lokið hafa meðferð og eru ákveðnir í að breyta lífi sínu.
Heilsuverndarstöðin mun sjá um rekstur heimilisins. Ákvörðun velferðarráðs Reykjavíkur að ganga til samninga við fyrirtækið hefur verið gagnrýnd af minnihlutanum í Reykjavík. Fjórir aðilar buðu í reksturinn þar á meðal SÁÁ. Tilboð samtakanna var lægra en tilboð Heilsuverndarstöðvarinnar.