Ríkir Rússar rífa út dýrar merkjavörur 16. desember 2008 05:00 Merkjavörur vinsælar. Viðskiptavinir Sævars Karls eru að mestu leyti ríkir Rússar og Norðmenn en þeim þykir lítið tiltökumál að punga út hundruðum þúsunda fyrir merkjavöru. „
Það gerðist bara hérna á laugardaginn að einhver ríkur Rússi gekk út með pelsa og jakkaföt fyrir hátt í milljón," segir Páll Kolbeinsson, einn eigenda tískuvöruverslunarinnar Sævar Karl í Bankastræti. Svo virðist að með falli krónunnar hafi skapast markaður fyrir vel stætt fólk að utan að koma hingað og kaupa sér dýr föt og annan lúxusvarning. Armani-jakkaföt og aðrar munaðarvörur sem þjóð í kreppu lætur sig bara dreyma um þessa dagana er pakkað niður í ferðatöskur og rata á fataslár erlendra auðmanna. Páll viðurkennir að hann hefði fyrirfram gert ráð fyrir því að þegar efnahagslægðin tæki öll völd myndi verslun með dýrar merkjavörur verða nánast sjálfhætt. Sú hefur ekki reynst raunin. Því moldríkir Rússar og Norðmenn rífa merkjavörurnar út og kaupa sér smekkleg jakkaföt fyrir hátt í milljón í hvert skipti. Heilu rárnar séu stundum bara rifnar út. „Þessir tveir hópar eru langfyrirferðarmestir en Danir hafa líka verið duglegir," segir Páll. Svava Johansen, framkvæmdastjóri NTC, hafði sömu sögu að segja. Útlendingar, þá sérstaklega Norðmenn og Rússar, hafi farið hamförum í kaupum á dýrum merkjavörum skömmu eftir hrun. Eitthvað sé þó að draga úr því núna. „Í þeirra augum hefur merkjavaran náttúrlega bara verið á hálfvirði. Þetta var alveg rosalega mikið í byrjun en það hefur aðeins hægt á því," segir Svava og minnist þess að einu sinni hafi einn einstaklingur keypt föt fyrir vel á aðra milljón. Verslunarstjóri Hugo Boss vildi ekkert tjá sig um þetta þegar Fréttablaðið leitaði eftir því. - fgg
Mest lesið „Þetta lið á Akureyri vildi ekki gefa mér gullið“ Lífið Gurrý um svuntuaðgerðina: „Jesús hvað þetta er búið að vera erfitt“ Lífið Opnar sig um andlát kærastans eftir skotárás í New York Lífið Clavicular fluttur á spítala vegna ætlaðrar ofskömmtunar Lífið Umdeildum K-Pop stjörnum skipt út í Hörpu Lífið „Ég hef grátið því að ég var svo skotin í þér“ Lífið „Ég vil ekki líkjast öllum öðrum“ Tíska og hönnun „Við teljum að þetta verði sögulegir tónleikar“ Tónlist Óvænt ökuferð að ógleymanlegu augnabliki Lífið Uppeldið hjá ömmu og afa áhrifamest Lífið Fleiri fréttir Mætti í þáttinn til að vinna sér inn fyrir þurrkara Frumfluttu lag Barnamenningarhátíðarinnar fyrir káta krakka „Ég hef grátið því að ég var svo skotin í þér“ Uppeldið hjá ömmu og afa áhrifamest „Þetta lið á Akureyri vildi ekki gefa mér gullið“ Gurrý um svuntuaðgerðina: „Jesús hvað þetta er búið að vera erfitt“ Clavicular fluttur á spítala vegna ætlaðrar ofskömmtunar Oddvitar landsins takast á við Oddvitaáskorunina Óvænt ökuferð að ógleymanlegu augnabliki Umdeildum K-Pop stjörnum skipt út í Hörpu Opnar sig um andlát kærastans eftir skotárás í New York „Svo kom í ljós að þetta var alls ekki amma mín“ „Hún reyndi aldrei að koma í stað mömmu“ „Ég var mjög skrítinn krakki“ Bryndís Líf orðin móðir Yfirgaf yfirstéttina fyrir loftárásir, listaverkarán og sprengjugerð Oddvitaáskorunin: „Big Papa“ uppáhalds gælunafnið Fyrsti transmaðurinn sem fer með aðalhlutverk í íslenskri kvikmynd Þriðja dóttir Sverris Bergmanns og Kristínar Evu komin í heiminn Óborganlegt faðmlag Jóhanns og Sigurðar „Litlu hlutirnir gefa lífinu merkingu“ Mesta áskorunin að greinast með hryggskekkju Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Britney farin í meðferð Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Söngvari Massive Attack handtekinn á mótmælum Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Eilíf glötun bíður ekki endilega bóka í ruslagámum Sjá meira