Innlent

Steingrímur segir svarbréf ríkisstjórnarinnar ,,galopið og loðið"

Magnús Már Guðmundsson skrifar
Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vg.
Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vg.

Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna, segir svarbréf Einars K. Guðfinnssonar sjávarútvegsráðherra til mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna vera ,,næstum því eins aumt og það getur verið." Hann segir flokk sinn gagnrýna viðbrögð ríkisstjórnarinnar ,,harðlega."

Í svarbréfi Einars kemur fram að íslensk stjórnvöld hafi hug á að ráðast í allsherjarendurskoðun á fiskveiðistjórnarkerfinu og ekki séu forsendur til staðar að greiða skaðabætur til tveggja sjómanna sem kærðu málið til nefndarinnar.

,,Verið að drepa málinu á dreif"

Að mati Steingríms eru ekki gefin nein fyrirheit um efnislegar breytingar á fiskveiðistjórnarkerfinu þar sem að orðalag svarbréfsins er að hans mati ,,galopið og loðið." ,,Það læðist að manni sjá illi grunur að verið sé að drepa málinu á dreif að hálfu stjórnvalda sem er dapurlegt," sögn Steingríms.

Skortur á samráði

Þá gagnrýnir Steingrímur að ríkisstjórnin hafi ekki haft samráð við stjórnarandstöðuflokkanna um málið. Seinast hafi verið farið fram á það í síðustu viku að málið yrði tekið fyrir á fundi í sjávarútvegs- og landbúnaðarnefnd Alþingis.

Steingrímur segir Vinstri græna hafi viljað að mannréttindanefnd SÞ yrði strax fullvissuð um tilteknar breytingar og að fiskveiðistjórnarkerfinu yrði breytt þannig að það uppfyllti kröfu nefndarinnar um jafnræði og réttindi borgaranna.

Svarbréf Einars K. Guðfinnsson til mannréttindanefndar SÞ má sjá hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×