Innlent

Fyrstu sumarsíldinni landað á Norðfirði

Bjarni Ólafsson AK.
Bjarni Ólafsson AK.

Togarinn Bjarni Ólafsson AK kom í gærdag með fyrstu sumarsíldina úr norsk-íslenska stofninum til Norðfjarðar. Aflinn er um 1.400 tonn og hófu þeir vinnslu í bræðslunni í gærkvöldi eftir því sem segir á vef Síldarvinnslunnar. Von er á Vilhelm Þorsteinssyni EA til Norðfjarðar í dag með frystar síldarafurðir. Skipin fengu aflann á miðunum við Jan Mayen.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×