Var smitaður af illskeyttum þráðormum 18. júní 2008 16:31
Ísbjörninn sem felldur var á Þverárfjalli fyrir um tveimur vikum reyndist smitaður af tríkínum sem eru þráðormar sem eru illskeyttir sjúkdómsvaldar í mörgum tegundum spendýra. Þetta var niðurstaða rannsókna Karls Skírnissonar, dýrafræðings á Tilraunastöðinni á Keldum, sem skoðaði björninn. Í tilkynningu frá honum kemur fram að það komi ekki á óvart því rannsóknir danskra sérfræðinga á ísbjörnum frá Austur-Grænlandi hafi sýnt að þar var um helmingur fullorðinna ísbjarna smitaður af tríkínum á 9. áratugnum. Karl segir að líkur á smiti aukist eftir því sem ísbirnir eldast en Þverárfellsbjörninn hafi verið miðaldra. „Þótt nokkur fita hafi verið á honum var hann samt óvenju léttur miðað við árstíma sem bendir til þess að árangur hans við kópaveiðar á ísnum á útmánuðum hafi verið lélegur. Ósagt skal látið hvort tríkínurnar höfðu áhrif á hreyfigetu dýrsins eða hvort einhverjir aðrir sjúkdómsvaldar voru líka að hrjá dýrið. Veirufræðingar á Keldum munu innan skamms leita að mótefnum í blóði dýrsins gegn nokkrum þekktum veirusjúkdómum. Hraunbirnan verður innan tíðar rannsökuð á sama hátt á Tilraunastöðinni á Keldum," segir í tilkynningunni. Á myndinni sést tríkínulirfa upprúlluð innan í þolhjúp í tungu ísbjarnarins sem felldur var við Þverfellsveg 3. júní 2008. Berist svona lirfur niður í meltingarfæri spendýra vaxa þær í fullorðna orma. Að mökun lokinni verpa kvenormarnir lirfum sem dreifast með blóðrás til vöðva dýrsins þar sem hver lirfa býr um sig í svona þolhjúp.MYND/Karl Skírnisson Þar kemur enn fremur fram að tríkínur séu þráðormar sem séu illskeyttir sjúkdómsvaldar í mörgum tegundum spendýra, meðal annars í refum, hundum, og nagdýrum. „Sníkjudýrið lifir líka auðveldlega í mönnum en menn smitast ekki nema við neyslu á hráu kjöti. Tríkínur valda sársaukafullum sjúkdómi þar sem lirfurnar búa um sig í vöðvum og trufla hreyfigetu dýranna. Mikið af lirfum safnast fyrir í vöðvum sem krefjast mikils blóðsteymis, til dæmis í tungu, kjálkavöðva, þind og hjarta en lirfurnar berast út um líkamann með blóðrásinni," segir Karl. Enn fremur bendir hann á að þráðormarnir hafi einu sinni áður fundist í ísbirni á Íslandi en sá var skotinn norður á Hornströndum á 7. áratugnum. „Tríkínur gætu auðveldlega haslað sér völl í íslensku lífríki, til dæmis ef refur eða hræétandi ránfuglar kæmust í kjöt af tríkínu-smituðum ísbirni. Vegna þessa er mikilvægt að farga ísbjarnarhræjum sem hér kunna að finnast eins fljótt og völ er á. Fljótlega verður rannsakað hvort birnan við Hraun var með tríkínur en Guðnýjarbjörninn margfrægi á Bolungarvík var ekki smitaður, segir Karl í tilkynningunni.
Tengdar fréttir Hjalti fer fyrir ísbjarnastarfshópi Hjalti J. Guðmundsson, sviðsstjóri náttúruauðlinda hjá Umhverfisstofnun, verður formaður starfshóps sem umhverfisráðherra hefur skipað og á að vinna tillögur vegna hugsanlegrar landtöku hvítabjarna hér á landi. Eins og fram kom á Vísi fyrr í dag er hópurinn skipaður eftir að tveir hvítabirnir komu hingað til lands á tveggja vikna tímabili. Starfshópur ráðherra á við vinnu sína að taka mið af reynslunni í þessi tvö skipti og viðbrögðum við komu bjarnanna. 18. júní 2008 17:06 Birnan var tæp 150 kíló Birnan sem felld var í við Hraun á Skaga í Skagafirði í gær reyndist 147 kíló við vigtun. Forstöðumaður Náttúrustofu Norðurlands vestra segir það sýna að líkamsástand dýrsins hafi ekki verið gott. 18. júní 2008 11:50 Landhelgisgæslan í ísbjarnaleit í dag - fundað um birnu í ráðuneyti Þyrla Landhelgisgæslunnar fer í eftirlitsflug um Hornstrandir í dag til þess að svipast um eftir ísbjörnum á svæðinu. Frá þessu greinir í tilkynningu frá Gæslunni. Ráðherra fundar sem stendur með yfirdýralækni dýragarðsins í Kaupmannahöfn vegna ísbjarnarins á Hrauni sem felldur var í gær. 18. júní 2008 11:27 Skipar starfshóp til að fara yfir ísbjarnamál Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra hefur skipað starfshóp til þess að fara yfir mál ísbjarnanna sem gengið hafa á land á síðustu vikum. Óskað verður eftir því að fá lánað eða kaupa búrið sem flutt var til landsins til þess að reyna að fanga birnuna á Hrauni á Skaga. 18. júní 2008 13:43 Mest lesið Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Óttast að yfir áttatíu hafi farist Erlent Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Innlent Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Erlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Erlent „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ Innlent Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Innlent Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Innlent Fleiri fréttir Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Búið að opna fyrir umferð að nýju eftir bilunina Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Sjá meira
Hjalti fer fyrir ísbjarnastarfshópi Hjalti J. Guðmundsson, sviðsstjóri náttúruauðlinda hjá Umhverfisstofnun, verður formaður starfshóps sem umhverfisráðherra hefur skipað og á að vinna tillögur vegna hugsanlegrar landtöku hvítabjarna hér á landi. Eins og fram kom á Vísi fyrr í dag er hópurinn skipaður eftir að tveir hvítabirnir komu hingað til lands á tveggja vikna tímabili. Starfshópur ráðherra á við vinnu sína að taka mið af reynslunni í þessi tvö skipti og viðbrögðum við komu bjarnanna. 18. júní 2008 17:06
Birnan var tæp 150 kíló Birnan sem felld var í við Hraun á Skaga í Skagafirði í gær reyndist 147 kíló við vigtun. Forstöðumaður Náttúrustofu Norðurlands vestra segir það sýna að líkamsástand dýrsins hafi ekki verið gott. 18. júní 2008 11:50
Landhelgisgæslan í ísbjarnaleit í dag - fundað um birnu í ráðuneyti Þyrla Landhelgisgæslunnar fer í eftirlitsflug um Hornstrandir í dag til þess að svipast um eftir ísbjörnum á svæðinu. Frá þessu greinir í tilkynningu frá Gæslunni. Ráðherra fundar sem stendur með yfirdýralækni dýragarðsins í Kaupmannahöfn vegna ísbjarnarins á Hrauni sem felldur var í gær. 18. júní 2008 11:27
Skipar starfshóp til að fara yfir ísbjarnamál Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra hefur skipað starfshóp til þess að fara yfir mál ísbjarnanna sem gengið hafa á land á síðustu vikum. Óskað verður eftir því að fá lánað eða kaupa búrið sem flutt var til landsins til þess að reyna að fanga birnuna á Hrauni á Skaga. 18. júní 2008 13:43